Greiðsluþátttaka miðast við ráðlagðan hámarksskammt
1. desember 2025
Sjúkratryggingar vilja tilkynna um breytingar á fyrirkomulagi á greiðsluþátttöku í lyfjum sem mun taka gildi 1. janúar 2026.

Greiðsluþátttaka ákveðinna lyfja mun miðast við ráðlagðan hámarksskammt samkvæmt markaðsleyfi lyfs hér á landi. Mun það fyrirkomulag taka gildi 1. janúar 2026. Mat á lyfjanotkun byggist á þeim reikningum sem sendir eru til Sjúkratrygginga. Ef notkun er samkvæmt ráðlögðum hámarksskammti þá fæst greiðsluþátttaka skv. greiðsluþátttökukerfinu en ef notkun er yfir hámarsskammti þá fæst ekki greiðsluþátttaka í þeim skammti sem er umfram.
Breytingin er í samræmi við 6. gr. reglugerðar nr. 1143/2019 um greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga í lyfjakostnaði, þar sem segir meðal annars:
„Sjúkratryggingastofnuninni er heimilt að takmarka greiðsluþátttöku sjúkratrygginga í lyfjakostnaði einstaklings, sem hefur verið samþykkt skv. 2. tölul. 2. mgr. 66. gr. lyfjalaga, við ákveðna skammtastærð sem fer umfram ráðlagðan hámarksskammt samkvæmt markaðsleyfi lyfsins hér á landi."
[11.12.25 Fréttin hefur verið uppfærð] Vegna margvíslegra spurninga í tengslum við breytinguna þá hafa Sjúkratryggingar tekið saman lista um helstu spurningarnar og svörunum við þeim - Spurt og svarað um hámarksgreiðsluþátttöku í lyfjum.
