Sjúkratryggingar hafa þegar hafið útboð á myndgreiningarþjónustu
3. nóvember 2024
Í tilefni af niðurstöðu kærunefndar útboðsmála í máli Intuens Segulómunar gegn Sjúkratryggingum vilja Sjúkratryggingar árétta að þegar er hafið útboð á myndgreiningarþjónustu.
Þá skal jafnframt tekið fram að myndgreiningarþjónusta var síðast boðin út árið 2017. Því verður ekki talið að liðinn sé langur tími frá síðasta útboði ef horft er til þess að um er að ræða þjónustu sem kallar á umfangsmikla fjárfestingu. Þá er mikilvægt að taka fram í þessu samhengi að Sjúkratryggingar hafa ekki hafnað samningum við neinn þann aðila sem boðið hefur upp á þá alhliða myndgreiningarþjónustu sem notendur þurfa á að halda.
Undirbúningur núverandi útboðs hefur staðið yfir í talsvert langan tíma og hefur m.a. verið unnið að stefnumótun um myndgreiningarþjónustu á vegum heilbrigðisráðuneytisins og að kostnaðargreiningu þjónustunnar. Stefnt er á að því að yfirstandandi útboðsferli ljúki á næstu vikum og að nýir samningar taki gildi 1. janúar 2025.
Markmið nýrra samninga er að tryggja hæfni þjónustuveitenda og að þeir hafi getu til að veita almenningi alhliða myndgreiningarþjónustu af góðum gæðum. Þá hefur jafnframt verið haft að leiðarljósi að tryggja hagkvæmni þjónustunnar og vinna gegn þeim mikla útgjaldavexti sem einkennt hefur myndgreiningarþjónustu.
Niðurstaða kærunefndar snýr ekki að þessu nýja útboði heldur einungis að fyrra fyrirkomulagi. Í málinu er í grundvallaratriðum tekist á um það hvort að tiltekin heilbrigðisþjónusta sem Sjúkratryggingar semja um sé útboðsskyld eða ekki. Sjúkratryggingar telja að almenn útboð geti verið áhrifarík aðferð til að semja um tiltekna heilbrigðisþjónustu. Það er á hinn bóginn ákaflega brýnt að Sjúkratryggingar hafi val um það hvenær sú aðferð er nýtt og hvenær önnur valferli eru notuð í því skyni að koma á samningum um heilbrigðisþjónustu.
Lög um sjúkratryggingar veita skýrt val um innkaupaaðferð, það er hvort bjóða á út þjónustu eða gera samninga um hana á öðrum grundvelli. Niðurstaða kærunefndar gengur gegn þessum skýru ákvæðum laga um sjúkratryggingar. Sé niðurstaða nefndarinnar lagalega rétt og hafi sambærileg áhrif á aðra þætti heilbrigðisþjónustu sem Sjúkratryggingar semja um, er ljóst að hún mun hafa mikil áhrif á samninga um heilbrigðisþjónustu og þar með á heilbrigðiskerfið í heild.
Að mati Sjúkratrygginga þyrftu málsástæður og röksemdafærsla fyrir því að kollvarpa með þessum hætti þeim lagalega grundvelli sem stofnunin hefur starfað á að vera mun skýrari. Það er þannig brýnt að fá skýra niðurstöðu í þessu máli og ekki síður að fá skýrari vísbendingar um gildi hennar gagnvart heilbrigðisþjónustu almennt.
Sjúkratryggingar telja þá niðurstöðu kærunefndar að sekta beri stofnunina vera órökrétta í ljósi þess að stofnunin hefur þegar hafið útboðsferli á myndgreiningarþjónustu. Tilgangur stjórnvaldssekta samkvæmt lögum um opinber innkaup er að stuðla að því að aðilar hagi innkaupum sínum með réttum hætti sem allra fyrst. Sjúkratryggingar hafa þegar hafið útboðsferlið og því engin nauðsyn til þess að ákvarða sekt til að stuðla að þeirri ákvörðun.
Í ljósi þýðingar málsins telja Sjúkratryggingar augljóst að nauðsynlegt verði að fá fram álit dómstóla á þeim mikilvægu álitaefnum sem úrskurðurinn felur í sér og munu þegar hefja undirbúning þess.