Fara beint í efnið

Námskeið í umboðsveitingu hjálpartækja

4. október 2022

Þriðjudaginn 11. október 2022, kl. 8:30 verður haldið námskeið í umboðsveitingu hjálpartækja.

Sjúkra - hjólastóll

Námskeiðið er ætlað iðjuþjálfum, sjúkraþjálfurum og öðrum heilbrigðisstarfsmönnum með háskólamenntun sem koma að hjálpartækjaráðgjöf og umsóknum/úthlutun hjálpartækja.

Sjúkratryggingar vinna stöðugt að umbótum með það að markmiði að bæta þjónustu fyrir notendur hjálpartækja. Einn liður í því er að einfalda og stytta umsóknarferlið með því að fagaðilar fái umboð til að úthluta einfaldari hjálpartækjum beint, án aðkomu starfsmanna Sjúkratrygginga, sem er sambærilegt fyrirkomulag og tíðkast hefur víða á Norðurlöndunum. Með þessu móti er hægt að stytta biðtíma notenda eftir einföldum nauðsynlegum hjálpartækjum enn frekar. Við höfum kallað þetta umboðsveiting.

Til að fá aðgang til að úthluta í gegnum umboðsveitingu þarf að vera viðstaddur/stödd stutt námskeið í gegnum TEAMS. Námskeiðið tekur ca. 2 klst.

Þeir sem hafa áhuga á að fá aðgang að umboðsveitingu hjálpartækja eru vinsamlega beðnir um að senda póst á netfangið edda.valtysdottir@sjukra.is eða hjalpart@sjukra.is fyrir 10. október.