Tveir hópar matsmannateyma á ferð
18. nóvember 2023
Náttúruhamfaratrygging Íslands er með tvo hópa matsmannateyma sem fara með eigendum í sín hús til að meta tjón
Náttúruhamfaratrygging Íslands er með tvo hópa matsmannateyma sem fara með eigendum í sín hús til að meta tjón í nokkrum eignum sem eru mikið skemmdar. Annað teymi á vegum Náttúruhamfaratryggingar hefur farið með HS Veitum að húsum þar sem heitavatnsnotkun hefur verið óeðlilega mikil undanfarið, með það fyrir augum að finna út úr því hvort um sé að ræða leka í eða við húsin. Ekki er farið inn í nein hús án þess að eigendur eða fulltrúar séu viðstaddir.