Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Náttúruhamfaratrygging Íslands Forsíða
Náttúruhamfaratrygging Íslands Forsíða

Náttúruhamfaratrygging Íslands

Stjórn NTÍ samþykkir gerð skýrslu um ávinning varnargarða

11. febrúar 2026

Stjórn Náttúruhamfaratryggingar Íslands samþykkti á fundi sínum 29. janúar sl. að láta vinna skýrslu um mat á ávinningi af gerð varnargarða á Reykjanesi.

Nú er unnið að undirbúningi verkefnisins, þar sem NTÍ mun leita til bæði hérlendra og erlendra sérfræðinga á sviði jarðvísinda og áhættuútreikninga til að tryggja faglegt, hlutlaust og vandað mat. Ef vel tekst til mun niðurstaðan veita mikilvægar upplýsingar um ávinninginn af varnargörðunum.

Vísað er til fréttar sem birt var á heimasíðu Fjármála- og efnahagsráðuneytisins 10. febrúar 2026 um breytta aðferðafræði við mat á ávinningi af gerð varnargarða á Reykjanesi.

Nánari upplýsingar um framvindu verkefnisins verða birtar síðar.

Hafðu samband

Sími: 575 3300

Netfang: nti@nti.is

Opnunartími

Mánudaga - fimmtudaga:
9 til 15

Föstudaga: 9 til 14

Heimilisfang

Hlíðarsmári 14

201 Kópavogur