Fara beint í efnið

NTÍ og Fasteignafélagið Þórkatla hafa komið sér saman um forgangsröðun mála í Grindavík

4. júní 2024

Náttúruhamfaratrygging Íslands (NTÍ) og Fasteignafélagið Þórkatla hafa komið sér saman um forgangsröðun mála í Grindavík. Hluti af þeim húsum sem Þórkatla hefur keypt á síðustu vikum í Grindavík hafa orðið fyrir tjóni vegna jarðhræringanna. Búið er að samþykkja kaup á um 720 íbúðarhúsum og talsverður hluti þeirra mun þurfa að fara í gegnum tjónamat hjá NTÍ og hluti hefur þegar farið í gegnum slíkt mat.

Grindavik loftmynd

Eins og í öðrum fasteignaviðskiptum færast réttindi og skyldur íbúðareiganda frá seljanda til kaupanda, þ.m.t. greiðsla tjónabóta þegar kominn er á skuldbindandi samningur um sölu fasteigna. Því færast mál vegna tjóns á viðkomandi húsum yfir til Þórkötlu sem mun reka þau gagnvart NTÍ. Stjórnendur Fasteignafélagsins Þórkötlu leggja þó áherslu á að ljúka við kaupsamninga og móttöku á eignum af hálfu félagsins áður en yfirferð hefst á tjónamatsgerðum NTÍ vegna eignanna.

Af þeim sökum mun NTÍ forgangsraða sinni vinnu til samræmis og leggja meiri þunga á að ljúka tjónamati og gerð matsgerða á öðrum eignum en þeim sem eru í söluferli til Þórkötlu. Það eru til að mynda eignir í eigu fyrirtækja og einstaklinga sem ekki geta selt eignir sínar til Þórkötlu. Samhliða því er unnið að því að koma á föstu verklagi á milli NTÍ og Þórkötlu um kynningu matsgerða vegna eigna í eigu Þórkötlu og við uppgjör vegna þess tjóns sem á þeim hefur orðið.

Hafðu samband

Sími: 575 3300

Netfang: nti@nti.is

Opnunartími

Mánudaga - fimmtudaga:
9 til 15

Föstudaga: 9 til 14

Heimilisfang

Hlíðarsmári 14

201 Kópavogur