Fara beint í efnið
Náttúruhamfaratrygging Íslands Forsíða
Náttúruhamfaratrygging Íslands Forsíða

Náttúruhamfaratrygging Íslands

NTÍ áréttar mögulegar takmarkanir á bótarétti þegar byggt er á þekktum hættusvæðum

28. ágúst 2026

Náttúruhamfaratrygging Íslands (NTÍ) hefur sent öllum sveitarfélögum landsins áminningu um skipulag byggðar og leyfisveitingar á svæðum þar sem náttúruvá er þekkt. Áminningin fylgir eftir bréfi sem NTÍ sendi sveitarfélögum 10. september 2025 um áhrif 16. gr. laga nr. 55/1992 þegar hús eða önnur mannvirki eru reist á stöðum sem vitað var fyrir fram að væru hættulegir vegna náttúruhamfara. Bréfið vakti mikil viðbrögð og hefur NTÍ síðan átt fjölmarga fundi með sveitarfélögum um efni þess.

Á stjórnarfundi NTÍ 15. júní síðastliðinn var forstjóra falið að vekja aftur athygli sveitarfélaga á málinu, meðal annars í ljósi breytinga á sveitarstjórnum og meðal stjórnenda og starfsfólks sveitarfélaga eftir sveitarstjórnarkosningar.

Samkvæmt 16. gr. er heimilt að lækka bætur eða synja bótakröfu að fullu þegar skilyrði ákvæðisins eru uppfyllt. Ekki er því hægt að ganga út frá því sem vísu að fullar tjónabætur verði greiddar þegar aðstæður falla undir ákvæðið.

NTÍ hvetur sveitarfélög til að byggja skipulagsákvarðanir og leyfisveitingar á uppfærðu áhættumati, skilgreina nauðsynlegar varnir og upplýsa byggingarleyfishafa og kaupendur eigna um þekkta áhættu og mögulegar takmarkanir á bótarétti.

Áminningu NTÍ og bréfið frá 10. september 2025 má lesa hér:
Áminningarbréf
Bréf sent 10. sept. 2025

Náttúruhamfaratrygging Íslands

Hafðu samband

Sími: 575 3300

Netfang: nti@nti.is

Opnun­ar­tími

Mánudaga - fimmtudaga:
9 til 15

Föstudaga: 9 til 14

Heim­il­is­fang

Hlíðarsmári 14

201 Kópavogur