Fara beint í efnið
Náttúruhamfaratrygging Íslands Forsíða
Náttúruhamfaratrygging Íslands Forsíða

Náttúruhamfaratrygging Íslands

NTÍ sýknað af kröfu um frekari bætur

2. júlí 2026

Héraðsdómur Reykjaness kvað upp dóm þann 30. júní 2026 og sýknaði Náttúruhamfaratryggingu Íslands af kröfu um frekari bætur

Húseign, sem er hluti fjöleignarhúss, varð fyrir miklu tjóni vegna jarðskjálftanna í Grindavík 10. nóvember 2023. Ágreiningur var um aðferðarfræði við ákvörðun vátryggingarbóta frá Náttúruhamfaratryggingu Íslands (NTÍ). Niðurstaða málsins var að NTÍ hefði farið eftir ákvæðum laga og reglna sem um þetta gilda. Var NTÍ því sýknað af frekari fjárkröfum í málinu, en krafan grundvallaðist á mismun á greiddum bótum og brunabótamati eignarinnar. Þá var NTÍ einnig sýknað af viðurkenningarkröfu um greiðslu skaðabóta. Dóminn er hægt að lesa hér

Náttúruhamfaratrygging Íslands

Hafðu samband

Sími: 575 3300

Netfang: nti@nti.is

Opnun­ar­tími

Mánudaga - fimmtudaga:
9 til 15

Föstudaga: 9 til 14

Heim­il­is­fang

Hlíðarsmári 14

201 Kópavogur