EFLA hefur lokið við gerð þrívíddarmódels frá Grindavík
25. desember 2023
Myndmælingateymi EFLU hefur fullklárað þrívíddarmódel af Grindavík sem það vann fyrir Náttúruhamfaratryggingu Íslands. Módelin, sem hægt er að sjá hér að neðan, veita haldbærar upplýsingar um ástand fasteigna og mannvirkja í Grindavík.
Módelin eru m.a. notuð við mat á skemmdum í kjölfar þeirra jarðhræringa sem hófust á svæðinu þann 10. nóvember síðastliðinn.
Yfir 60 drónaflug hafa verið flogin yfir Grindavík til að ná sem nákvæmastri mynd af ástandi bæjarins. Þannig var hægt að mynda allan bæinn úr 200 metra hæð yfir sjávarmáli og einnig voru ákveðin sprungusvæði myndum neðar til þess að fá skýrari mynd af þeim. Gerðar voru ítrekaðar tilraunir til þess að hitamynda bæinn til að finna skemmdir á hitaveitulögnum en aðstæður til slíkrar myndatöku þurfa að vera háðar margskonar skilyrðum á vettvangi sem ekki voru fyrir hendi þegar til átti að taka.
Tengill á módelið af Grindavík
Vinna við verkefnið hófst um miðjan nóvember og hefur úrvinnsla og samsetning þeirra upplýsinga sem nú liggja fyrir verið nokkuð tímafrek og umfangsmikil, en ákveðið var að gera þessar upplýsingar aðgengilegar fyrir íbúa og aðra hagaðila sem kunna að hafa not af þeim gögnum sem nú liggja fyrir.