Aðalheiður Júlírós Óskarsdóttir hefur verið ráðin í nýtt starf gæðastjóra
9. júlí 2026
Aðalheiður hefur gegnt starfi gæðastjóra hjá Reykjanesbæ frá árinu 2020 og býr að mikilvægri reynslu af uppbyggingu og rekstri gæðakerfa í opinberri stjórnsýslu. Hún er ráðin til starfa úr hópi 55 umsækjenda.

Aðalheiður leiddi innleiðingu gæðakerfis Reykjanesbæjar frá grunni, þvert á alla stjórnsýsluna. Verkefnið tók meðal annars til skráningar verkferla, umbótastarfs, fræðslu til starfsfólks og framkvæmdar innri úttekta. Auk þess hefur hún m.a. komið að vinnuverndarmálum og uppfærslu á viðbragðsáætlun sveitarfélagsins í tengslum við jarðhræringarnar á Suðurnesjum. Áður en hún tók við starfi sem gæðastjóri hjá Reykjanesbæ sinnti hún persónuverndarmálum sveitarfélagsins og var verkefnastjóri undirbúnings forseta- og alþingiskosninga árið 2024. Ennfremur leiddi hún innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem m.a. færði sveitarfélaginu viðurkenningu UNICEF sem „Barnvænt sveitarfélag“ árið 2025.
Aðalheiður er með MLM-gráðu í forystu og stjórnun með áherslu á mannauðsstjórnun frá Háskólanum á Bifröst og BA-próf í félagsráðgjöf frá Háskóla Íslands. Hún hefur jafnframt sótt sérnám í gæðastjórnun, þar á meðal ISO 9000-staðlana og framkvæmd innri úttekta. Þá situr hún í stjórn Félags gæðastjóra í opinberri stjórnsýslu.
„Aðalheiður kemur til NTÍ með nákvæmlega þá reynslu sem við sóttumst eftir — sjónarhorn gæðastjóra úr opinberri stjórnsýslu sem hefur sjálf leitt uppbyggingu á gæðakerfi frá grunni. Við hlökkum til að fá hana í hópinn," segir Hulda Ragnheiður Árnadóttir, forstjóri NTÍ.
„Ég er þakklát fyrir traustið sem mér er sýnt með ráðningunni og hlakka til að taka við þessu stóra verkefni. Ég fæ nú tækifæri til að vinna áfram að gæðamálum í opinberri stjórnsýslu, en nú í nýju og áhugaverðu umhverfi," segir Aðalheiður Júlírós Óskarsdóttir.
Aðalheiður tekur við nýja starfinu hjá NTÍ í haust.