75 húseignir metnar í altjón og rúmir 10 milljarðar króna hafa verið greiddir í bætur
13. febrúar 2026
Um 700–800 tilkynningar vegna jarðhræringa við Grindavík.

Frá 10. nóvember 2023 hefur Náttúruhamfaratrygging Íslands (NTÍ) móttekið á bilinu 700–800 tilkynningar vegna jarðhræringa í og við Grindavík. Langstærsti hluti tilkynninga tengist kvikuinnskoti sem olli umfangsmikilli jarðskjálftahrinu þann 10. nóvember 2023.
Alls hafa 657 mál fengið efnislega meðferð hjá stofnuninni. Þar af eru:
617 mál vegna jarðskjálftanna 10. nóvember 2023
37 mál vegna eldgoss 14. janúar 2024
2 mál vegna eldgoss 29. maí 2024
1 mál vegna eldgoss 21. nóvember 2024
Skipting tjónamála
Af þeim málum sem hafa verið tekin til meðferðar skiptast þau þannig eftir eignaflokkum:
Húseignir – íbúðir: 469 mál (71%)
Húseignir – atvinnuhúsnæði/annað: 100 mál (15%)
Lausafé: 72 mál (11%)
Mannvirki: 16 mál (3%)
Þetta sýnir að langstærstur hluti tjónamála varðar íbúðarhúsnæði.
Greiddar tjónabætur
Heildarfjárhæð greiddra tjónabóta nemur nú 10.155 milljónum króna.
Skipting bóta eftir tjónaflokkum er sem hér segir:
Húseignir – íbúðir: 4.249 m.kr.
Húseignir – atvinnuhúsnæði/annað: 3.895 m.kr.
Lausafé: 266 m.kr.
Mannvirki: 1.745 m.kr.
Óbeint tjón og altjón
Auk beins tjóns hafa borist nokkrir tugir tilkynninga vegna óbeins tjóns, bæði í Grindavík og annars staðar á Reykjanesi. Í örfáum tilvikum er um að ræða verulegt tjón sem fellur ekki undir bótaskyldu NTÍ. Meginorsakir óbeins tjóns eru skortur á orku, þar á meðal hitaveitu og rafmagni til húshitunar, auk skemmda sem urðu þegar vatni var hleypt á lagnakerfi húsa sem höfðu orðið fyrir frostskemmdum.
Alls hafa 75 húseignir verið metnar þannig að kostnaður við viðgerð eða endurbyggingu sé jafn eða hærri en vátryggingarfjárhæð og vátryggingarfjárhæð hefur því verið greidd að fullu, að frádreginni eigin áhættu. Rétt er að benda á að fasteignanúmer geta innihaldið fleiri en eina matseiningu, svo sem íbúðarhús og sérstæðan bílskúr. Í sumum tilvikum hefur ein matseining á fasteign orðið fyrir altjóni en aðrar skemmst lítið eða ekkert, en tjónabætur eru aðeins greiddar vegna þeirra matseininga sem verða fyrir tjóni.
NTÍ heldur áfram vinnu við úrvinnslu og uppgjör mála í samræmi við gildandi lög og reglur.