Fara beint í efnið
Lyfjastofnun Forsíða
Lyfjastofnun Forsíða

Lyfjastofnun

Upplýsingar fyrir umboðsaðila og heildsala

Ný undanþágulyf eru birt í lyfjaverðskrá þann 1. hvers mánaðar.

Mikilvægt er að innflytjendur nýrra undanþágulyfja sæki um verð og birtingu í verðskrá um leið og slík ákvörðun liggur fyrir. Verðumsókn undanþágulyfs þarf að berast Lyfjastofnun í síðasta lagi fjórum virkum dögum fyrir gildistöku lyfjaverðskrár.


Ef um lyfjaskort er að ræða er lagt kapp á að afgreiða verðumsókn hratt.

Ef þörf er á að ávísa og afgreiða nýtt undanþágulyf áður en að birtingu kemur fyrsta hvers mánaðar er heildsölum heimilt að upplýsa viðskiptavini sína, Sjúkratryggingar og Embætti landlæknis um samþykkt hámarksverð í heildsölu og smásölu, vörunúmer, merkingu, og aðrar nauðsynlegar upplýsingar.


Í neyðartilvikum, ef brýn þörf er á að nota undanþágulyf sem er tilbúið til afgreiðslu í vöruhúsi á Íslandi en ekki komið í lyfjaverðskrá, geta læknar á heilbrigðisstofnununum og stofum sem hafa heimild til lyfjakaupa nýtt sér möguleika í gegnum mínar síður.