Fara beint í efnið
Lyfjastofnun Forsíða
Lyfjastofnun Forsíða

Lyfjastofnun

Tilkynna um gölluð eða fölsuð lyf

Hægt er að tilkynna um gölluð lyf eða hugsanlega fölsuð lyf til Lyfjastofnunar með því að senda tölvupóst á lyfjastofnun@lyfjastofnun.is.

Nauðsynlegar upplýsingar í tilkynningu

Eftirfarandi upplýsingar þurfa að koma fram, eins og hægt er:

  • heiti lyfs

  • styrkleiki

  • lotunúmer

  • fyrningardagur

  • vörunúmer

  • greinargóð lýsing á gallanum

  • myndir eða sýnishorn af lyfinu ef hægt er

Ítarlegri upplýsingar

Þegar framleiðendur, markaðsleyfishafar eða heildsalar tilkynna þarf eftirfarandi:

  • allar grunnupplýsingar um lyfið (heiti, styrkleiki, lotunúmer, fyrningardagur o.s.frv.)

  • ítarleg lýsing á gallanum og upplýsingar um forvarnaraðgerðir

  • upplýsingar um framleiðanda, markaðsleyfishafa og heildsala (dreifingaraðila) á Íslandi, auk umboðsmanns sé slíkum til að dreifa

  • birgðastaða og dreifing lyfsins á Íslandi

  • upplýsingar um samhliða innflutning á Íslandi

  • umfang / tíðni gallans

  • áhættumat vegna gallans, ef mögulegt

  • fyrirhugaðar aðgerðir á markaði og hvers eðlis þær eru (þ.e. hversu langt eftir dreifingarkeðjunni þær skuli ná; til heildsala, apóteka eða sjúklinga)

Tímamörk fyrir tilkynningu til Lyfjastofnunar

Áhættugreining

Tímamörk

Notkun gallaða eða falsaða lyfsins gæti hugsanlega orsakað lífshættu eða alvarlegan heilsubrest

Tilkynna tafarlaust

Notun lyfsins getur valdið sjúkdómi eða kallað á ranga meðferð sjúklings

Innan 24 klukkustunda

Gallaða eða falsaða lyfið orsakar að líkindum ekki alvarlega heilsufarsógn

Innan 72 klukkustunda

Hvernig er unnið úr tilkynningum?

Sérfræðingar Lyfjastofnunar leggja mat á tilkynningar um gölluð eða fölsuð lyf, með öryggi sjúklinga í huga. Ef þörf er talin á getur komið til innköllunar lyfs í samvinnu við fyrirtækin sem í hlut eiga, yfirleitt markaðsleyfishafann. Í því sambandi er tekið mið af hugsanlegum lyfjaskorti og vandkvæðum í dreifingu í kjölfar aðgerða, með það í huga hvaða afleiðingar slíkt gæti haft fyrir sjúklinga.

Ýmsir aðilar geta sent upplýsingar um gölluð eða fölsuð lyf:

  • lyfjafyrirtæki (framleiðandi, markaðsleyfishafi, heildsali)

  • lyfjayfirvöld annarra landa; upplýsingar berast þá sem váboð sem send eru um víðtækt samskiptanet

  • apótek

  • heilbrigðisstarfsfólk

  • notendur lyfja

Tilkynningar frá heilbrigðisstarfsfólki og notendum eru framsendar til markaðsleyfishafa svo rannsókn geti farið fram.

Galli lyfsins eða alvarleiki fölsunar er metinn út frá nokkrum viðmiðum í einn af þremur flokkum:

Class 1: Notkun gallaða eða falsaða lyfsins gæti hugsanlega orsakað lífshættu eða alvarlegan heilsubrest.

Class 2: Notkun lyfsins getur valdið sjúkdómi eða kallað á ranga meðferð sjúklings.

Class 3: Gallaða eða falsaða lyfið orsakar að líkindum ekki alvarlega heilsufarsógn, en sölustopp eða innköllun gæti þó komið til álita af öðrum ástæðum.

Hvernig fer innköllun fram?

Ef rannsókn leiðir í ljós alvarlegan galla eða frávik í lyfi sem er á markaði á Íslandi, eða er flutt út frá Íslandi, gæti komið til innköllunar þeirrar lotu/lotna sem málið varðar.

Lyfjafyrirtæki (t.d. markaðsleyfishafi, framleiðandi eða heildsali) skal tilkynna Lyfjastofnun fyrirfram ef fyrirhugað er að ráðast í innköllun. Þegar innköllun hefur verið ákveðin skal lyfjafyrirtækið senda Lyfjastofnun þar til gert innköllunarbréf áður en formleg tilkynning er send þeim sem málið varðar. Þetta er í samræmi við evrópska gæðastaðla um góða starfshætti, sem og innlend lög og reglugerðir.

Lyfjastofnun metur fyrirhugaðar aðgerðir á grunni framkominna upplýsinga og er í því sambandi tekið mið af hugsanlegum lyfjaskorti og vandkvæðum í dreifingu í kjölfar aðgerða. Einnig er metið hvort þörf sé á að upplýsa lyfjayfirvöld annarra landa, og er þeim þá miðlað um samskiptanet váboða.

Lyfjastofnun getur kallað eftir skýrslu um framkvæmd innköllunarinnar frá viðkomandi lyfjafyrirtæki.