Stefna og leiðarljós
Framtíðarsýn Lyfjastofnunar er að vera leiðandi afl í heilsu og velferð samfélagsins.

Sterk ásýnd og virk upplýsingamiðlun
Lyfjastofnun leggur áherslu á að miðla hlutlægum upplýsingum sem byggja á nýjustu þekkingu hverju sinni, á sem skilvirkastan hátt eftir því sem tæknin býður upp á. Einkunnarorðin eru gæði, traust, þjónusta.

Sterkir innviðir
Grunnur sterkra innviða er skilvirkt skipulag starfseminnar þar sem valinn maður er í hverju rúmi og straumlínulögun starfsins er höfð að leiðarljósi. Að til séu tæki og búnaður sem tækni hvers tíma krefst, og gefur starfsfólki tækifæri til að skila sínu besta.

Eftirsóknarverður vinnustaður
Hjá Lyfjastofnun starfar hæft og vel menntað starfsfólk með þá reynslu sem fjölbreytt verkefni stofnunarinnar krefjast. Lyfjastofnun er fjölskylduvænn vinnustaður þar sem lögð er áhersla á jafnvægi vinnu og einkalífs. Allt starfsfólk nýtur sömu launa og kjara fyrir sömu eða jafnverðmæt störf, enda hefur stofnunin hlotið jafnlaunavottun.

Straumlínulöguð starfsemi
Í starfsemi sem byggir á straumlínulögun er leitast við að greina og nýta verkferla sem skila sem bestum árangri á sem fljótlegastan hátt. Greina á hinn bóginn þá snúninga sem ekki gagnast verkefninu, sneiða hjá þeim, og spara þannig tíma og fyrirhöfn. Lyfjastofnun hefur nýtt straumlínustjórnun í starfseminni um árabil.

Stafræn stofnun
Opinber þjónusta án stafrænna ferla er óhugsandi á okkar tímum. Lyfjastofnun hefur markvisst unnið að því á síðustu árum að virkja og efla stafrænar lausnir, endurskoða verklag til að bjóða upp á sjálfvirkni í afgreiðslu, og miðla upplýsingum gegnum netið. Hið sama á einnig við um starfið inn á við, hvers konar gagnamóttöku, flokkun og úrvinnslu, allt í því skyni að bæta og hraða þjónustu, draga úr líkum á misfellum, og minnka kostnað. Stöðugt er unnið að endurbótum með þeirri tækni sem tiltæk er á hverjum tíma.

Öflugt innlent og erlent samstarf
Erlent samstarf er mikilvægur þáttur í starfsemi Lyfjastofnunar og á starfsfólk í nánu samstarfi við systurstofnanir á Evrópska efnahagssvæðinu. Samstarfið kristallast einkum og sér í lagi í starfinu sem fram fer hjá Lyfjastofnun Evrópu (EMA) með útgáfu markaðsleyfa, skráningu aukaverkana og eftirliti með fyrirtækjum og stofnunum sem sýsla með lyf. Norrænu stofnanirnar hafa einnig með sér sérstakt samstarf þar sem markmiðið er að styrkja sameiginlega hagsmuni þessara smærri þjóða í Evrópusamstarfinu, tryggja lyfjaframboð og auka skilvirkni eftirlits.
Leiðarljós
Gæði
Lyfjastofnun leggur áherslu á að hjá stofnuninni starfi ávallt vel menntað, hæft og upplýst starfsfólk og sérfræðingar á sviði lyfjamála, við mat á gæðum og öryggi lyfja, við faglegt eftirlit með aðilum í lyfjaframleiðslu, dreifingu og upplýsingamiðlun. Lyfjastofnun býður skapandi vinnuumhverfi og góða starfsaðstöðu og tækifæri til símenntunar og til framþróunar í starfi.
Traust
Áreiðanleiki og öguð vinnubrögð tryggja öryggi og skapa traust hagsmunaaðila. Lyfjastofnun vill skapa traust hagsmunaaðila s.s. með öflugri upplýsingagjöf, samkvæmni og áreiðanleika, virðingu og opnum samskiptum og samvinnu.
Þjónusta
Lyfjastofnun vill veita hagsmunaaðilum bestu faglegu þjónustu sem völ er á hverju sinni, við útgáfu markaðsleyfa lyfja, upplýsingagjöf um lyf og leiðbeiningar um gildandi lög og reglugerðir, svo tryggja megi að góð og öflug lyf séu á markaði. Þetta er gert með góðu aðgengi að upplýsingum og leiðbeiningum hjá Lyfjastofnun, aðgengi að færustu sérfræðingum og vel menntuðu og þjálfuðu starfsfólki í öflugu samstarfi við heilbrigðisyfirvöld, erlendar systurstofnanir á EES svæðinu og Lyfjastofnun Evrópu.
Síðast yfirfarið: 11. maí 2026
