Fara beint í efnið
Lyfjastofnun Forsíða
Lyfjastofnun Forsíða

Lyfjastofnun

Þessi frétt er meira en árs gömul

Uppfærsla á leiðarvísi um góða starfshætti í lyfjagát (GVP) sem snýr að fræðsluefni

16. ágúst 2024

Tvær breytingar hafa verið gerðar. Annars vegar uppfærsla á leiðbeiningum sem varða áhættuminnkandi aðgerðir, hins vegar útgáfa nýrra leiðbeininga um aðferðir til að meta árangur af áhættuminnkandi aðgerðum

Lyfjastofnun vekur athygli á því að nýjar leiðbeiningar um góða starfshætti í lyfjagát (GVP) fyrir áhættuminnkandi aðgerðir hafa verið gefnar út, Module XVI (uppfærsla) og Module XVI, viðauki II (nýjar leiðbeiningar). Leiðbeiningarnar hafa þegar öðlast gildi.

Markaðsleyfishafar skulu hafa þessar leiðbeiningar til hliðsjónar við gerð fræðsluefnis og DHPC-bréfa. Sérstaklega er vakin athygli á nýjum og ítarlegum leiðbeiningum varðandi sjúklingakort.

Lyfjastofnun vinnur nú að uppfærslu upplýsinga á vef. þ.á.m. leiðbeiningum varðandi gerð fræðsluefnis, og eyðublöðum. Þar til nýjar leiðbeiningar og eyðublöð verða aðgengileg á vef Lyfjastofnunar skulu markaðsleyfishafar notast við núverandi eyðublöð.Þessar uppfærðu og nýju GVP leiðbeiningar má nálgast með því að smella á tenglana hér fyrir neðan.

Lyfjastofnun

Heim­il­is­fang

Lyfjastofnun

Vínlandsleið 14

113 Reykjavík

Opnun­ar­tími

Móttaka

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. Lokað

Þjónustuver

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. 9:00 - 12:00