Fara beint í efnið
Lyfjastofnun Forsíða
Lyfjastofnun Forsíða

Lyfjastofnun

Þessi frétt er meira en árs gömul

Undanþágulyf sem oftast var ávísað í júlí og ágúst 2024

2. október 2024

Mikilvægt er að lyf, sem eru í mikilli og samfelldri notkun í undanþágukerfinu, verði skráð. Upplýsingum um notkun undanþágulyfja verður framvegis miðlað mánaðarlega og markaðsleyfishafa getið

Eitt af hlutverkum Lyfjastofnunar er að hafa eftirlit með framboði lyfja, með það að markmiði að koma í veg fyrir að lyfjaskortur hafi áhrif á öryggi sjúklinga. Lyfjastofnun hefur því unnið að því að fjölga skráðum lyfjum, þ.e. lyfjum sem hafa íslenskt markaðsleyfi og eru markaðssett hér á landi.

Sérstök áhersla hefur verið lögð á, að lyf sem eru í mikilli og samfelldri notkun í undanþágukerfinu verði skráð. Ljóst er að veruleg tækifæri felast í skráningu umræddra lyfja og hvetur Lyfjastofnun markaðsleyfishafa og umboðsaðila til að gaumgæfa málið.

Listinn hér að neðan sýnir þau lyf í undanþágukerfinu sem læknar ávísuðu oftast í júlí og ágúst 2024, þar með talin lyf sem ávísað var til að mæta tímabundnum skorti skráðra lyfja, stjörnumerkt til aðgreiningar.

Athygli skal vakin á því að í sérstökum tilfellum getur Lyfjastofnun heimilað lyfjafræðingum apóteka að breyta lyfjaávísun læknis á tiltekið lyf þannig að ávísunin gildi fyrir það undanþágulyf sem búið er að heimila. Úrræðið er einungis notað þegar ljóst þykir að án aðgerða kæmi upp íþyngjandi staða fyrir sjúklinga og heilbrigðisstarfsmenn. Í þeim tilfellum eru ávísanirnar hefðbundnar þó að um undanþágulyf sé að ræða við afgreiðslu og koma því ekki fram á listanum sem hér fylgir.

Í listanum eru upplýsingar um heiti, lyfjaform, virkt efni, fjölda ávísana og vörunúmer lyfjanna í lyfjaverðskrá.

Lyfjaheiti

Lyfjaform

Innihaldsefni

Norrænt vörunúmer

Fjöldi afgr. ávísana

Magnesia Dak*

filmhtfl

Magnesíum hýdroxíð

988511

1.144

988529

897

991085

312

Samtals

2.353

Keflex*

mixt.kyr

Cefalexinum

992984

380

Samtals

380

töflur

Cefalexinum

994972

302

Samtals

302

Utrogest

hylki

Progesteronum

987498

571

Samtals

571

Propranolol

filmhtfl

Propranololum

993015

328

989759

121

Samtals

449

Mst Continus

forðatfl

Morphinum

996811

168

990441

122

Samtals

290

Mykundex

mixtúra

Nystatinum

989949

228

Samtals

228

Quinine Sulfate

töflur

Chininii

975592

186

Samtals

186

Utrogestan

hylki

Progesteronum

989832

180

Samtals

180

Sem mixtúra

mixtúra

combinations

962234

174

Samtals

174

Senease

töflur

Senna

993734

173

Samtals

173

Cefalexín W&H*

hylki

Cefalexinum

995003

119

Samtals

119

Emgesan

töflur

magnesium hydroxide

975435

115

Samtals

115

Levomepromazine Orion

töflur

Levomepromazinum

980955

107

Samtals

107

Nozinan

töflur

Levomepromazinum

979867

102

Samtals

102

Lyfjastofnun

Heim­il­is­fang

Lyfjastofnun

Vínlandsleið 14

113 Reykjavík

Opnun­ar­tími

Móttaka

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. Lokað

Þjónustuver

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. 9:00 - 12:00