Fara beint í efnið
Lyfjastofnun Forsíða
Lyfjastofnun Forsíða

Lyfjastofnun

Þessi frétt er meira en árs gömul

Undanþágulyf sem oftast var ávísað fyrstu þrjá mánuði þessa árs

7. maí 2024

Sérstök áhersla hefur verið lögð á að lyf sem eru í mikilli og samfelldri notkun í undanþágukerfinu verði skráð

Eitt af hlutverkum Lyfjastofnunar er að hafa eftirlit með framboði lyfja þannig að lyfjaskortur hafi sem minnst áhrif á öryggi sjúklinga. Lyfjastofnun hefur því unnið að því að fjölga skráðum lyfjum, þ.e. lyfjum sem hafa íslenskt markaðsleyfi og eru markaðssett hér á landi.

Sérstök áhersla hefur verið lögð á, að lyf sem eru í mikilli og samfelldri notkun í undanþágukerfinu verði skráð. Ljóst er að veruleg tækifæri felast í skráningu umræddra lyfja og hvetur Lyfjastofnun markaðsleyfishafa og umboðsaðila til að gaumgæfa málið.

Listinn hér að neðan sýnir þau lyf í undanþágukerfinu sem læknar ávísuðu oftast fyrstu þrjá mánuði ársins 2024, þar með talin lyf sem ávísað var til að mæta tímabundnum skorti skráðra lyfja, stjörnumerkt til aðgreiningar.

Athygli skal vakin á því að í sérstökum tilfellum getur Lyfjastofnun heimilað lyfjafræðingum apóteka að breyta lyfjaávísun læknisá tiltekið lyf þannig að ávísunin gildi fyrir það undanþágulyf sem búið er að heimila. Úrræðið er einungis notað þegar ljóst þykir að án aðgerða kæmi upp íþyngjandi staða fyrir sjúklinga og heilbrigðisstarfsmenn. Í þeim tilfellum eru ávísanirnar hefðbundnar þó að um undanþágulyf sé að ræða við afgreiðslu og koma því ekki fram á listanum sem hér fylgir.

Í listanum eru upplýsingar um heiti, lyfjaform, virkt efni, fjölda ávísana og vörunúmer lyfjanna í lyfjaverðskrá.

Lyfjaheiti

Lyfjaform

Virkt innihaldsefni

Norrænt vnr.

Fjöldi áv.

MAGNESIA DAK*

filmhtfl

Magnesíum hýdroxíð

988511

1.006

988529

589

991085

144

Samtals

1.739

Propranolol

filmhtfl

Propranololum

993015

675

989759

259

töflur

Propranololum

994211

113

mixtúra

Propranololum

972613

4

Samtals

1.051

Utrogest

hylki

Progesteronum

987498

777

949620

93

Samtals

870

SEM MIXTÚRA

mixtúra

Kódein, dífenhýdramín, ammóníum-klóríð og lakkrísextrakt

962234

354

962242

172

Samtals

526

Utrogestan

hylki

Progesteronum

989832

386

987852

23

Samtals

409

Levomepromazine Orion

töflur

Levomepromazinum

980955

220

981995

100

986531

19

986549

4

Samtals

343

Miralax

lausnduf

Hægðalyf með Osmótíska verkun

958829

192

988628

145

Samtals

337

SENEASE

töflur

Senna

993734

310

Samtals

310

Naproxen

sþ-tfl

Naproxenum

996168

275

Samtals

275

Quinine Sulfate

töflur

Chininii

975592

246

Samtals

246

Periactin

töflur

Cyproheptadinum

964115

217

Samtals

217

Estramon*

forðapl

Estradiolum

995871

127

995863

39

Samtals

166

*lyfi ávísað til að mæta tímabundnum skorti skráðra lyfja

Lyfjastofnun

Heim­il­is­fang

Lyfjastofnun

Vínlandsleið 14

113 Reykjavík

Opnun­ar­tími

Móttaka

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. Lokað

Þjónustuver

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. 9:00 - 12:00