Fara beint í efnið
Lyfjastofnun Forsíða
Lyfjastofnun Forsíða

Lyfjastofnun

Þessi frétt er meira en árs gömul

Tvö laus störf hjá Lyfjastofnun

24. febrúar 2025

Auglýst er eftir sérfræðingi í lyfjaskráningum og verkefnafulltrúa í markaðsleyfadeild

Lyfjastofnun auglýsir laus störf sérfræðings í skráningum lyfja og verkefnafulltrúa. Störfin heyra undir markaðsleyfadeild og eru á sviði mats og skráningar lyfja. Leitað er að jákvæðum, drífandi og nákvæmum einstaklingum . Um 100% starf er að ræða og er kostur ef viðkomandi getur hafið störf sem fyrst.

Umsóknarfrestur er til og með 10. mars 2025 . Umsóknir óskast fylltar út á www.intellecta.is og þarf umsóknum að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Lyfjastofnun hefur hlotið jafnlaunavottun og eru laun samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðuneytis og hlutaðeigandi stéttarfélags. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.

Nánari upplýsingar veita Lea Kristín Guðmundsdóttir (leakristin@intellecta.is) og Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) í síma 511 1225.