Tímabundin undanþága vegna bólusetninga gegn inflúensu í lyfjabúðum
6. nóvember 2026
Lyfjastofnun hefur veitt tímabundna undanþágu frá ávísunarskyldu inflúensubóluefnisins Influvac. Það þýðir að hægt er að fá bólusetningu í apótekum sem uppfylla tilskilin skilyrði, án lyfseðils. Undanþágan gildir frá 27. október 2026 til og með 26. október 2027.

Undanþágan er bundin við bólusetningu á staðnum í apótekinu. Hún heimilar því ekki að bóluefnið sé afhent án lyfseðils til að taka með heim eða fá bólusetningu annars staðar.
Fagleg þjónusta og öryggi að leiðarljósi
Apótek sem hyggjast bjóða upp á bólusetningar þurfa að hafa fengið staðfestingu landlæknis á að þjónustan uppfylli faglegar kröfur og önnur skilyrði heilbrigðislöggjafar. Bólusetningar skulu framkvæmdar af lyfjafræðingum eða hjúkrunarfræðingum sem hafa til þess tilskildar heimildir og viðeigandi þjálfun.
Lyfjastofnun leggur sérstaka áherslu á að bólusetningarþjónustan komi ekki niður á faglegri lyfjafræðilegri þjónustu í apótekum.
Mönnun og skipulag skal vera með þeim hætti að tryggt sé nægilegt svigrúm til öruggrar afgreiðslu lyfja, veitingar ráðgjafar um notkun þeirra og annarrar lögbundinnar þjónustu við almenning.
Undanþágan verður endurskoðuð ef þörf krefur
Undanþágan gildir að óbreyttu í eitt ár, að því tilskildu að öll skilyrði hennar séu uppfyllt. Hún getur komið til endurskoðunar, meðal annars ef fyrirliggjandi frumvarp á Alþingi, sem fjallar meðal annars um ávísunarétt lyfjafræðinga á bóluefni, verður samþykkt. Jafnframt getur undanþágan fallið úr gildi hjá einstökum apótekum ef þau uppfylla ekki lengur skilyrði fyrir veitingu bólusetninga samkvæmt samningi við Sjúkratryggingar Íslands.
Undanþágan tekur til Influvac, stungulyfs, dreifu í áfylltri sprautu, og er veitt á grundvelli 2. mgr. 14. gr. lyfjalaga nr. 100/2020.
