Þessi frétt er meira en árs gömul
Tilkynningum um reglubundin verkefni verð og greiðsluþátttöku hætt
12. apríl 2024
Tilkynningar verða gefnar út ef þörf er á að koma mikilvægum upplýsingum til skila

Lyfjastofnun hefur hætt birtingu tilkynninga um eftirfarandi:
útgáfu verðskrár
útgáfu lyfjaverðskrárgengis
lyfja sem felld eru úr lyfjaverðskrár vegna birgðaskorts
lista nýrra lyfja til birtingar í næstu lyfjaverðskrá
Um er að ræða reglubundin verkefni sem sinnt er samkvæmt fyrirfram ákveðnum, auglýstum tímalínum. Tímalínurnar er hægt að nálgast á vef Lyfjastofnunar undir kafla um verð og greiðsluþátttöku.
Áfram verða gefnar út tilkynningar ef þörf er á að koma mikilvægum upplýsingum til skila, s.s. í tilfelli endurútgáfu lyfjaverðskrár.
