Fara beint í efnið
Lyfjastofnun Forsíða
Lyfjastofnun Forsíða

Lyfjastofnun

Þessi frétt er meira en árs gömul

Til markaðsleyfishafa og umboðsmanna: Lyfjastofnun boðar til fjarfundar um ESMP 3. mars

19. febrúar 2025

ESMP er kerfi til að skima fyrir og fá yfirsýn yfir lyfjaskort á EES-svæðinu. Skráning á fundinn stendur yfir

Lyfjastofnun Evrópu (EMA) hefur tekið í gagnið fyrstu útgáfu af kerfi til að skima fyrir og fá yfirsýn yfir lyfjaskort á EES-svæðinu. Kerfinu, sem ber heitið European Shortages Monitoring Platform (ESMP), er ætlað að safna upplýsingum um framboð og eftirspurn lyfja fyrir menn, í því skyni að fyrirbyggja skort, greina aðstæður og stýra málum, komi til skorts.EMA hefur haldið netnámskeið fyrir markaðsleyfishafa og gefið út leiðbeiningar.Lyfjastofnun boðar umboðsaðila og markaðsleyfishafa til umræðufundar um ESMP mánudaginn 3. mars kl 13. Fundurinn verður fjarfundur, á Teams. Skráningar er þörf til að taka þátt í fundinum. Frestur til að skrá sig rennur út í lok dags föstudaginn 28. febrúar.

Lyfjastofnun

Heim­il­is­fang

Lyfjastofnun

Vínlandsleið 14

113 Reykjavík

Opnun­ar­tími

Móttaka

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. Lokað

Þjónustuver

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. 9:00 - 12:00