Fara beint í efnið
Lyfjastofnun Forsíða
Lyfjastofnun Forsíða

Lyfjastofnun

Þessi frétt er meira en árs gömul

Til markaðsleyfishafa – íslenskar þýðingar staðalheita

1. febrúar 2024

Um er að ræða þýðingar á nýjum og/eða breyttum staðalheitum. Athugasemdir eða tillögur má senda til Lyfjastofnunar á meðfylgjandi skjali eigi síðar en 15. febrúar nk.

Drög að nýjum íslenskum þýðingum á staðalheitum fyrir lyfjaform/íkomuleiðir lyfja sem evrópska lyfjaskráin (EDQM) hefur samþykkt, liggja nú fyrir. Um er að ræða 30 ný staðalheiti. Í allmörgum tilfellum eru þetta ný samsett staðalheiti (combined terms) þar sem skeytt er saman tveimur eða fleiri áður samþykktum þýðingum lyfjaforma/umbúða. Einnig eru lagðar til tvær lagfæringar á áður birtum staðalheitum.

Hægt er að senda athugasemdir

Áður en staðalheiti verða samþykkt og send EDQM til birtingar er hagsmunaaðilum boðið að senda Lyfjastofnun athugasemdir við þýðingarnar á meðfylgjandi skjali. Athugasemdir ásamt greinargóðum útskýringum, og ef við á nýjum tillögum að þýðingum, leiðréttingum eða ábendingum skulu sendar í því skjali sem er til umsagnar, þ.e. dálkinn lengst til hægri, og berast á netfangið lyfjastofnun@lyfjastofnun.isauðkennt „Athugasemdir við staðalheiti M-2024-01-0456“, eigi síðar en 15. febrúar n.k.

Athugið að útskýra vel athugasemdir svo ekki fari á milli mála við hvað er átt og af hverju athugasemdin er gerð.

Lyfjastofnun

Heim­il­is­fang

Lyfjastofnun

Vínlandsleið 14

113 Reykjavík

Opnun­ar­tími

Móttaka

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. Lokað

Þjónustuver

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. 9:00 - 12:00