Fara beint í efnið
Lyfjastofnun Forsíða
Lyfjastofnun Forsíða

Lyfjastofnun

Þessi frétt er meira en árs gömul

Samstarfssamningur við slóvensku lyfjastofnuna undirritaður

9. október 2023

Forstjóri Lyfjastofnunar bindur vonir við gott samstarf í framtíðinni á sviði lyfjaskráninga, lyfjaeftirlits og vísindaráðgjafar

Lyfjastofnun hefur undirritað samkomulag um samvinnu á sviði lyfjamála við slóvensku lyfjastofnunina, JAZMP. Samningurinn er sambærilegur þeim sem Lyfjastofnun hefur gert við aðrar erlendar stofnanir m.a. á Möltu og í Hollandi. Í samkomulaginu er m.a. fjallað um að efla samvinnu og gagnkvæma þjálfun sérfræðinga stofnananna á sviði lyfjaskráninga, lyfjaeftirlits og vísindaráðgjafar.

Rúna Hauksdóttir Hvannberg, forstjóri Lyfjastofnunar sagði af þessu tilefni:

Það er eftir miklu að slægjast fyrir smærri stofnanir að eiga í góðu og nánu samstarfi sín á milli. Verkefnin eru sambærileg og það er gagnlegt fyrir sérfræðinga okkar að geta leitað til hvers annars og lært af hvorum öðrum. Við bindum vonir við gott samstarf við slóvensku stofnunina í framtíðinni. Rúna Hauksdóttir Hvannberg, forstjóri Lyfjastofnunar

Undirritun samningsins fór fram í borginni Santiago de Compostela á Spáni þegar forstjórar evrópskra lyfjastofnana hittust á reglubundnum fundi í lok september sl. Fundirnir eru alla jafna haldnir í því landi sem fer með forsæti ráðherraráðs Evrópusambandsins hverju sinni.

Lyfjastofnun

Heim­il­is­fang

Lyfjastofnun

Vínlandsleið 14

113 Reykjavík

Opnun­ar­tími

Móttaka

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. Lokað

Þjónustuver

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. 9:00 - 12:00