Þessi frétt er meira en árs gömul
Opnunartími hjá Lyfjastofnun yfir hátíðarnar
13. nóvember 2024
Opnunartími Lyfjastofnunar yfir hátíðarnar verður með svipuðu sniði og fyrri ár. Afgreiðsla stofnunarinnar verður lokuð á tímabili lágmarksþjónustu, en símtalsbeiðnum og netspjalli verður þó sinnt þá daga

Opið verður almenna vinnudaga á venjulegum opnunartíma, kl. 9:00 - 15:00, fyrir utan aðfangadag og gamlársdag. Dagana 23. desember 2024 – 3. janúar 2025 verður lágmarksþjónusta. Afgreiðsla stofnunarinnar verður lokuð og því ekki tekið við eftirritunarskyldum lyfjum á þessum tíma. Netspjalli og símtalsbeiðnum verður þó sinnt þessa daga, og áríðandi verkefnum sömuleiðis þrátt fyrir lágmarksþjónustu að öðru leyti. Hefðbundin starfsemi hefst að nýju 6. janúar 2025.
Takmarkanir verða í eftirtöldum málaflokkum á meðan á lokun og lágmarksþjónustu stendur
Inn- og útflutningsleyfi ávana- og fíkniefna
Inn- og útflutningsleyfi ávana- og fíkniefna verða ekki afgreidd á tímabilinu 23. desember 2024 – 3. janúar 2025.
Eftirritunarskyld lyf
Ekki verður tekið við eftirritunarskyldum lyfjum til eyðingar á tímabilinu 23. desember 2024 – 3. janúar 2025.
CPP vottorð
Ekki verður tekið við umsóknum um CPP vottorð á tímabilinu 23. desember 2024 – 3. janúar 2025.
Klínískar rannsóknir lækningatækja
Ekki verður tekið við umsóknum um leyfi til klínískra rannsókna og virknirannsókna á lækningatækjum og breytinga á rannsóknaráætlun, frá 23. desember 2024 til 3. janúar 2025. Berist umsóknir á þessu tímabili verður móttaka þeirra ekki staðfest fyrr en eftir 6. janúar.
