Þessi frétt er meira en árs gömul
Opnunartími hjá Lyfjastofnun breytist frá og með 1. ágúst nk.
15. júlí 2025
Tekið verður á móti pósti, vörum og eftirritunarskyldum lyfjum á þriðjudögum. Móttakan verður lokuð á föstudögum. Netspjalli og símtalsbeiðnum verður sinnt eins og verið hefur síðustu mánuði

Ákveðið hefur verið að einfalda verkferla í móttöku Lyfjastofnunar að Vínlandsleið 14.Frá og með 1. ágúst nk. verður tekið á móti pósti, vörum og eftirritunarskyldum lyfjum á þriðjudögum frá kl. 9 til 15. Móttaka Lyfjastofnunar er að öðru leyti opin mánudaga til fimmtudaga kl. 9-15. Þau sem koma í móttöku skrá sig inn á skjáborði og kalla þannig eftir viðeigandi þjónustu. Móttakan verður lokuð á föstudögum.
Mánudaga – fimmtudaga: kl. 9-15 opið í móttöku
Þriðjudagar kl. 9-15: tekið á móti pósti, vörum ogeftirritunarskyldum lyfjum
Föstudagar: lokað í móttöku
Netspjalli og símtalsbeiðnum verður sinnt eins og verið hefur síðustu mánuði.
