Fara beint í efnið
Lyfjastofnun Forsíða
Lyfjastofnun Forsíða

Lyfjastofnun

Ólögleg peptíð send til greiningar

23. júlí 2026

Í ólöglegum peptíðum sem tollgæslan gerði upptæk reyndist lítið um virk lyfjaefni en óhreinindi voru mikil

Í tengslum við stórfelldan innflutning ólöglegra peptíða hingað til lands sendi tollgæslan til greiningar tugi sýnishorna sem gerð voru upptæk úr póst- og hraðsendingum.

Europol hafði milligöngu um greininguna og fór hún fram á rannsóknastofu á vegum Evrópusambandsins. Úrtak til greiningar var valið með þeim hætti að tekið var eitt sýnishorn úr sendingum frá mörgum mismunandi seljendum í Kína.

Lítið um virk lyfjaefni, mikil óhreinindi

Í stórum hluta sýnishornanna reyndist við efnagreiningu ekki unnt að staðfesta þau virku lyfjaefni sem sagt var að varan innihéldi. Hins vegar kom í ljós að mikil óhreinindi voru í sýnishornunum, en slíkt er algengt þegar framleiðsla á sér stað við slæm skilyrði. Notkun á slíkum lyfjum getur haft í för með sér margvísleg heilsufarsleg vandamál, sérstaklega þegar um er að ræða efni sem sprautað er inn fyrir fyrstu varnir líkamans.

Lyfjastofnun

Heim­il­is­fang

Lyfjastofnun

Vínlandsleið 14

113 Reykjavík

Opnun­ar­tími

Móttaka

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. Lokað

Þjónustuver

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. 9:00 - 12:00