Fara beint í efnið
Lyfjastofnun Forsíða
Lyfjastofnun Forsíða

Lyfjastofnun

Októberfundur PRAC, lyfjaöryggisnefndar EMA

7. október 2026

Sérfræðinganefnd Lyfjastofnunar Evrópu (EMA) um eftirlit með ávinningi og áhættu lyfja (PRAC) fundaði dagana 28. september til 1. október sl.

Á októberfundi PRAC var fjallað um mat á áætlun um áhættustjórnun (RMP) nokkurra lyfja, ýmist þeirra sem ekki höfðu enn fengið markaðsleyfi, eða sem uppfærsla á áætlun um áhættustjórnun markaðssettra lyfja. Auk þess var venju samkvæmt rætt um öryggisskýrslur (PSURs/ PSUSA), og um niðurstöður rannsókna sem gerðar voru til að meta öryggi markaðssettra lyfja, m.a. íbúprófens og inflúensubóluefnis.

Þá bárust ný öryggisboð (e. safety signal) vegna nokkurra lyfja, þar á meðal lyfja sem innihalda semaglútíð og líraglútíð, auk þess sem eldri öryggisboð voru til frekari umfjöllunar.

Frétt EMA um októberfund PRAC

Dagskrá októberfundar PRAC