Fara beint í efnið
Lyfjastofnun Forsíða
Lyfjastofnun Forsíða

Lyfjastofnun

Þessi frétt er meira en árs gömul

Nýr heilbrigðisráðherra heimsækir Lyfjastofnun

13. janúar 2025

Stjórnarskipti í lok síðasta árs höfðu þær breytingar í för með sér að Willum Þór Þórsson lét af störfum sem heilbrigðisráðherra og við keflinu tók nýr ráðherra, Alma D. Möller.

Þann 8. janúar sl. fékk Lyfjastofnun heimsókn frá nýjum heilbrigðisráðherra, Ölmu D. Möller, ásamt föruneyti sem kom til að kynna sér starfsemina. Rúna Hauksdóttir Hvannberg, forstjóri Lyfjastofnunar sagði af þessu tilefni að um afar gagnlega og upplýsandi fund hafi verið að ræða þar sem farið var yfir fjölbreytt hlutverk stofnunarinnar, helstu verkefni og rekstur ásamt þeim áskorunum sem stofnunin stendur frammi fyrir.

Lyfjastofnun er ein af grunnstoðum heilbrigðiskerfis okkar landsmanna. Hún gegnir lykilhlutverki í því að tryggja öryggi landsmanna með greiðu aðgengi að lyfjum og lækningatækjum á öllum tímum. Þetta eru risavaxnar áskoranir en verkefnið er í góðum höndum hjá öflugum stjórnendum og sérfræðingum stofnunarinnar -Alma D. Möller, heilbrigðisráðherra

Ég fagna sérstaklega þeim áhuga sem ráðherra hefur þegar sýnt starfsemi Lyfjastofnunar með heimsókn sinni. Slíkur stuðnigur skiptir miklu máli fyrir áframhaldandi árangur. Ég er full bjartsýni á gott samstarf við ráðherra í framtíðinni og hlakka til að vinna í sameiningu að lyfjamálum með öryggi lyfjanotenda í fyrirrúmi. -Rúna Hauksdóttir Hvannberg, forstjóri Lyfjastofnunar

Sjá einnig: Frétt á vef Stjórnarráðsins um heimsókn ráðherra til Lyfjastofnunar

Lyfjastofnun

Heim­il­is­fang

Lyfjastofnun

Vínlandsleið 14

113 Reykjavík

Opnun­ar­tími

Móttaka

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. Lokað

Þjónustuver

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. 9:00 - 12:00