Fara beint í efnið
Lyfjastofnun Forsíða
Lyfjastofnun Forsíða

Lyfjastofnun

Þessi frétt er meira en árs gömul

Nýjar gjaldskrár Lyfjastofnunar

8. janúar 2024

Gjaldskrárnar sem um ræðir eru annars vegar vegna lyfja, hins vegar lækningatækja. Árgjöld lyfja hækka ekki frá síðasta ári, en að öðru leyti er meðaltalshækkun liða gjaldskránna 8,7% milli ára

Nýjar gjaldskrár Lyfjastofnunar hafa verið birtar í Stjórnartíðindum og tóku þær gildi 1. janúar sl. Um er að ræða gjaldskrá fyrir markaðsleyfi, árgjöld og önnur gjöld vegna lyfja,sem Lyfjastofnun innheimtir, og gjaldskrá vegna eftirlits Lyfjastofnunar með lækningatækjum.

Árgjöld lyfja hækka ekki frá síðasta ári, en að öðru leyti er meðaltalshækkun liða gjaldskránna 8,7% milli ára.

Heilbrigðisráðherra ákvarðar hækkun gjaldskránna eins og fram kemur í Stjórnartíðindum, og eru hækkanirnar í samræmi við verðlagsforsendur fjárlaga.

Breytingar á afsláttarreglum verða tilkynntar á næstunni.

Lyfjastofnun

Heim­il­is­fang

Lyfjastofnun

Vínlandsleið 14

113 Reykjavík

Opnun­ar­tími

Móttaka

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. Lokað

Þjónustuver

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. 9:00 - 12:00