Ný lyf á markað í nóvember 2026
5. nóvember 2026
Samantekt um ný lyf sem komu á markað 1. nóvember 2026

ATC flokkur A – meltingarfæri og efnaskipti
Teduglutide Viatris 5 mg stungulyfsstofn og leysir, lausn
Eitt hettuglas inniheldur 5 mg af tedúglútíði sem duft. Eftir blöndun inniheldur hvert hettuglas 5 mg af tedúglútíði í 0,5 ml af lausn, sem samsvarar 10 mg/ml styrkleika.
Teduglutide Viatris er ætlað til meðferðar:
Fyrir sjúklinga 4 mánaða leiðrétt fyrir meðgöngualdur og eldri sem eru með stuttþarmaheilkenni (Short Bowel Syndrome (SBS)).
Lyfið er samheitalyf Revestive og er sérfræðingsmerkt og lyfseðilsskylt
ATC flokkur B - Blóð og blóðmyndandi líffæri
Apixaban Zentiva 2,5 mg og 5 mg filmuhúðaðar töflur
Hver filmuhúðuð tafla inniheldur 2,5 mg eða 5 mg apixaban.
Apixaban Zentiva er ætlað til meðferðar fyrir fullorðna og börn.
Fullorðnir
Forvörn gegn bláæðasegareki (VTE) hjá fullorðnum sjúklingum sem hafa gengist undir valfrjáls mjaðmarliðskipti eða hnéliðskipti.
Forvörn gegn heilaslagi og segareki í slagæð hjá fullorðnum sjúklingum með gáttatif sem ekki tengist hjartalokusjúkdómum (non-valvular atrial fibrillation, NVAF) ásamt einum eða fleiri áhættuþáttum, svo sem sögu um heilaslag eða tímabundna blóðþurrð í heila (transient ischaemic attack, TIA), aldur ≥ 75 ára, háþrýstingi, sykursýki eða hjartabilun með einkennum (NYHA flokkur ≥ II).
Meðferð við segamyndun í djúplægum bláæðum (DVT) og lungnasegareki (PE), og forvörn gegn endurtekinni segamyndun í djúplægum bláæðum og lungnasegareki hjá fullorðnum (sjá kafla 4.4 fyrir sjúklinga með lungnasegarek og hvikult blóðfræðilegt ástand).
Börn
Meðferð við bláæðasegareki (VTE) og forvörn gegn endurteknu bláæðasegareki hjá börnum frá 28 daga aldri til yngri en 18 ára.
Lyfið er samheitalyf Eliquis og er lyfseðilsskylt.
ATC flokkur C - Hjarta- og æðakerfi
Lyfið inniheldur múkópólýsakkaríð pólýsúlfat 3 mg/g.
Hirudoid er notað við grunnlægum margúl.
Grunnlæg segabláæðabólga, t.d. segabláæðabólga vegna innrennslis og eftir meðgöngu.
Lyfið er ekki lyfseðilsskylt.
ATC flokkur L - Æxilshemjandi lyf og lyf til ónæmistemprunar
Columvi 2,5 mg og 10 mg innrennslisþykkni, lausn
Hvert hettuglas með 2,5 ml af þykkni inniheldur 2,5 mg af glofitamabi í styrkleikanum 1 mg/ml.
Hvert hettuglas með 10 ml af þykkni inniheldur 10 mg af glofitamabi í styrkleikanum 1 mg/ml.
Columvi samhliða gemcitabini og oxaliplatini er ætlað til meðferðar við:
dreifðu stórfrumu B frumueitilæxli (diffuse large B-cell lymphoma, DLBCL) hjá fullorðnum sjúklingum, sem er endurkomið eða svarar ekki meðferð, án frekari skilgreiningar (DLBCL NOS), þar sem samgena stofnfrumuígræðsla (ASCT) á ekki við.
Lyfið er lyfseðilsskylt.
ATC flokkur R - Öndunarfæri
Fexofenadine Viatris 180 mg filmuhúðaðar töflur
Hver filmuhúðuð tafla inniheldur 180 mg af fexófenadínhýdróklóríði, sem jafngildir 168 mg af fexófenadíni.
Fexofenadine Viatris 180 mg er ætlað að:
draga úr einkennum sem koma fram vegna langvinns ofsakláða (chronic idiopathic urticaria) hjá fullorðnum og börnum eldri en 12 ára.
Lyfið er samheitalyf Telfast og er lyfseðilsskylt, en fæst í lausasölu í minni pakkningum.
ATC-VET flokkur Q - Dýralyf
Clavusan Vet 50mg/12,5 mg tafla og 250mg/ 62,5 mg tafla
Hver tafla inniheldur virk innihaldsefni: Amoxicillín (sem amoxicillín þríhýdrat) Klavúlansýra (sem kalíumklavúlanat)
Til meðferðar við sýkingum af völdum baktería sem eru næmar fyrir amoxicillíni og klavúlansýru, þ.m.t.
húðsjúkdómum (þ. á m. djúp- og grunnlægum graftarhúðkvillum (pyodermas)),
sýkingum í húð- og mjúkvefjum (graftarkýlum og sýkingu í húðpokum við endaþarm (anal sacculitis)),
tannsýkingum (t.d. tannholdsbólgu),
þvagfærasýkingum,
öndunarfærasjúkdómum (sem hafa áhrif á efri og neðri öndunarveg), garnabólgu.
Lyfið er samheitalyf Synulox Palatable og er lyfseðilsskylt.
Icthiovac ERM Baðþykkni, dreifa fyrir Atlantshafslax
Hver ml inniheldur virk innihaldsefni Yersinia ruckeri, af sermisgerðum:
O1, lífgerð 1, stofn 8363, óvirkjuð
O2, lífgerð 1, stofn 8365, óvirkjuð
O1, lífgerð 2, stofn 8302, óvirkjuð
Icthiovac ERM er notað sem virk ónæming á Atlantshaflaxi , til að draga úr dauðsföllum af völdum sermigerða O1 (lífgerðir 1 og 2) og sermigerða O2 (lífgerð 1) af Yersinia ruckeri í ferskvatni.
Lyfið er lyfseðilsskylt.
ProZinc 40 a.e./ml Stungulyf, dreifa handa hundum og köttum
Hver ml inniheldur virkt innihaldsefni: Mannainsúlín 40 IU sem prótamín zink insúlín.
Til meðferðar á sykursýki í köttum og hundum til að draga úr blóðsykurshækkun og bæta klínísk einkenni sem tengjast sjúkdóminum.
Lyfið er lyfseðilsskylt.
Yfirlit yfir ný lyf sem komu á markað í nóvember 2026
Lyfjaheiti | Lyfjaform | Styrkleiki | Magn | Ávana-og fíknilyf |
|---|---|---|---|---|
Apixaban Zentiva | Filmuhúðuð tafla | 2,5 mg og 5 mg | 60, 168, 100 stk. | Nei |
Clavusan Vet | Tafla | 50mg/12,5 mg og 250mg/62,5mg | 100 stk. | Nei |
Columvi | Innrennslisþykkni, lausn | 2,5 mg og 10 mg | 2,5 ml og 10 ml | Nei |
Fexofenadine Viatris | Filmuhúðu tafla | 180 mg | 100 stk. | Nei |
Hirudoid | Hlaup og krem | 3 mg/g | 100 g | Nei |
Icthiovac ERM | Baðþykkni, dreifa | 1000 ml | Nei | |
ProZinc | Stungulyf, dreifa | 40 a.e./ml | 10 ml | Nei |
Teduglutide Viatris | Stungulyfsstofn og leysir, lausn | 5 mg | 28 stk. | Nei |
Nánari upplýsingar um lyfin má nálgast í sérlyfjaskrá og í lyfjatextum hvers lyfs.
Samantekt um ný lyf inniheldur einungis upplýsingar um ný lyf. Umfjöllunin nær ekki til nýrra lyfjaforma, nýrra styrkleika eða nýrra pakkningastærða. Upplýsingar um framangreint er hægt að nálgast í lista yfir ný lyf til birtingar.
