Fara beint í efnið
Lyfjastofnun Forsíða
Lyfjastofnun Forsíða

Lyfjastofnun

Þessi frétt er meira en árs gömul

Niðurstaða lyfjaöryggisnefndar EMA eftir rannsókn á sykursýkis- og þyngdarstjórnunarlyfjum

15. apríl 2024

Lyfjaöryggisnefnd EMA (PRAC) segir fyrirliggjandi gögn ekki sýna fram á orsakasamhengi milli notkunar sykursýkis- og þyngdarstjórnunarlyfja og sjálfsvígs- og sjálfsskaðahugsana. Áfram verður fylgst með rannsóknum og hvers kyns gögnum sem tengjast lyfjunum

Lyfjaöryggisnefnd EMA (PRAC) fundaði dagana 8.-11. apríl sl. Meðal þess sem var á dagskrá var að fylgja eftir öryggisboði ( e. safety signal ) sem sneri að tilkynningum alvarlegra aukaverkana samfara notkun sykursýkis- og þyngdarstjórnunarlyfja af flokki GLP-1 agonista.

Öryggisboð á síðasta ári

Síðasta sumar kom Lyfjastofnun á framfæri öryggisboði til Lyfjastofnunar Evrópu (EMA) vegna aukaverkanatilkynninga um sjálfsvígs- og sjálfsskaðahugsanir í tengslum við notkun lyfjanna Ozempic og Saxenda. Fleiri sambærilegar tilkynningar komu fram í gagnagrunni EMA. Lyfjaöryggisnefndin tók málið til umfjöllunar og ákvað að láta rannsóknina einnig ná til allra annarra lyfja í flokknum GLP-1 agonistar.

Gögn til grundvallar

Í nóvember sl. óskaði lyfjaöryggisnefndin eftir viðbótargögnum frá markaðsleyfishöfum GLP-1 agonista-lyfja. Auk þess var metin nýleg rannsókn byggð á stórum gagnagrunni sjúkraskýrslna þar sem til skoðunar var hugsanlegt samhengi sjálfsvígshugsana í tengslum við notkun semaglútíð-lyfja, eða við önnur sykursýkis- og þyngdarstjórnunarlyf sem ekki teljast til GLP-1 agonista. Að auki framkvæmdi EMA þýðisrannsókn ( e. Cohort study ) sem studdist við gögn úr sjúkraskrám, til að meta áhættu á sjálfsvígs- og sjálfskaðahugsunum hjá fólki sem notaði GLP-1 agonista við sykursýki af gerð tvö.

Niðurstaða PRAC

Eftir að hafa metið umrædd gögn, auk þess að fara yfir klínínskar rannsóknir og upplýsingar úr hefðbundinni skimun lyfjanna eftir að þau voru tekin í notkun, telur PRAC að ekki sé þörf á að uppfæra lyfjatexta. -Markaðsleyfishafar lyfjanna munu áfram fylgjast með öllum upplýsingum og gögnum sem tengjast notkun lyfjanna, og miðla því sem nýtt er, í reglubundnum öryggisskýrslum (PSUR) til lyfjayfirvalda.

Lyfjastofnun

Heim­il­is­fang

Lyfjastofnun

Vínlandsleið 14

113 Reykjavík

Opnun­ar­tími

Móttaka

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. Lokað

Þjónustuver

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. 9:00 - 12:00