Fara beint í efnið
Lyfjastofnun Forsíða
Lyfjastofnun Forsíða

Lyfjastofnun

Þessi frétt er meira en árs gömul

Netnámskeið Lyfjastofnunar Evrópu fyrir markaðsleyfishafa um notkun ESMP 19. febrúar

6. febrúar 2025

ESMP er kerfi til að skima fyrir og fá yfirsýn yfir lyfjaskort á EES-svæðinu

Eins og áður hefur verið greint frá hefur Lyfjastofnun Evrópu (EMA) nýlega komið á fót kerfi til að skima fyrir og fá yfirsýn yfir lyfjaskort á EES-svæðinu. Kerfinu, sem ber heitið European Shortages Monitoring Platform (ESMP), er ætlað að safna upplýsingum um framboð og eftirspurn lyfja fyrir menn, í því skyni að fyrirbyggja skort, greina aðstæður og stýra málum, komi til skorts.Fyrsta útgáfa ESMP var tekin í notkun í febrúar 2025.

Netnámskeið fyrir markaðsleyfishafa 19. febrúar nk.

Vakin er athygli á netnámskeiði sem EMA heldur fyrir markaðsleyfishafa til kynningar á ESMP kerfinu. Námskeiðið er sérstaklega ætlað markaðsleyfishöfum miðlægt skráðra lyfja um hvernig tilkynna eigi lyfjaskort í gegnum ESMP grunninn.Námskeiðið fer fram miðvikudaginn 19. febrúar nk. kl. 9 – 11:30 að íslenskum tíma. Nauðsynlegt er að skrá sig í gegnum tengil á síðu námskeiðsins.

Þá er einnig vakin athygli á skriflegum leiðbeiningum sem ætlaðar eru markaðsleyfishöfum, um innleiðingu kerfisins.

Rafrænn kynningarfundur Lyfjastofnunar 3. mars

Lyfjastofnun mun einnig standa fyrir rafrænum kynningarfundi á ESMP 3. mars nk. kl. 13:00-13:00 og verður skráning á fundinn auglýst síðar.

Lyfjastofnun

Heim­il­is­fang

Lyfjastofnun

Vínlandsleið 14

113 Reykjavík

Opnun­ar­tími

Móttaka

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. Lokað

Þjónustuver

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. 9:00 - 12:00