Fara beint í efnið
Lyfjastofnun Forsíða
Lyfjastofnun Forsíða

Lyfjastofnun

Nánari afmörkun fyrirhugaðrar verðendurskoðunar frumlyfja

2. nóvember 2026

Einungis heildsöluverð markaðssettra frumlyfja fyrir menn að undanskildum leyfisskyldum lyfjum

Lyfjastofnun hefur ákveðið að afmarka fyrirhugaða endurskoðun heildsöluverðs við markaðssett frumlyf fyrir menn, að undanskildum leyfisskyldum lyfjum sem ekki verða tekin til endurskoðunar að þessu sinni. Um er að ræða lyf sem auðkennd eru með „1“ í dálkinum „Staða lyfs“ í lyfjaverðskrá.

Endurskoðunin nær til allra ATC-flokka en við framkvæmd hennar verður tekið tillit til viðeigandi ívilnana samkvæmt verklagsreglum Lyfjastofnunar.

Að öðru leyti er vísað til fyrri tilkynningar Lyfjastofnunar um fyrirhugaða endurskoðun heildsöluverðs frumlyfja.