Fara beint í efnið
Lyfjastofnun Forsíða
Lyfjastofnun Forsíða

Lyfjastofnun

Maífundur PRAC, lyfjaöryggisnefndar EMA

19. maí 2026

Sérfræðinganefnd Lyfjastofnunar Evrópu um eftirlit með ávinningi og áhættu lyfja (PRAC) fundaði dagana 4.-7. maí sl.

Á maífundinum var fjallað um mat á áætlun um áhættustjórnun (RMP) fjölmargra lyfja, ýmist þeirra sem ekki höfðu enn fengið markaðsleyfi eða sem uppfærsla á áætlun um áhættustjórnun markaðssettra lyfja. Auk þess var venju samkvæmt rætt um öryggisskýrslur (PSURs/ PSUSA), og um niðurstöður rannsókna sem gerðar voru til að meta öryggi markaðssettra lyfja, m.a. um bóluefnið Shingrix sem er gegn ristli, og Ixchiq, bóluefni gegn chikungunya-veirunni. Þá barst öryggisboð (e. signal) vegna ýmissa bensódíasepín-lyfja sem nú verður metið af nefndinni.

Frétt EMA um maífund PRAC

Dagskrá maífundar PRAC

Lyfjastofnun

Heim­il­is­fang

Lyfjastofnun

Vínlandsleið 14

113 Reykjavík

Opnun­ar­tími

Móttaka

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. Lokað

Þjónustuver

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. 9:00 - 12:00