Þessi frétt er meira en árs gömul
Lyfjaverðskrá 1. júlí 2025 hefur verið endurútgefin
2. júlí 2025
Leiðréttingin varðar lyfin Ozempic og Wegovy, og einnig undanþágulyfið ROPIVACAIN-HCl Noridem

Endurútgáfan var gerð af tveimur ástæðum. Lyfjunum Wegovy og Ozempic var vegna mistaka raðað saman í viðmiðunarverðflokk. Það hefur nú verið leiðrétt. Undanþágulyfinu ROPIVACAIN-HCl Noridem vnr. 964649 hefur einnig verið bætt í lyfjaverðskrána.
Uppfærða verðskrá, ásamt öðrum skjölum má nálgast á sínum stað á vef Lyfjastofnunar.
