Fara beint í efnið
Lyfjastofnun Forsíða
Lyfjastofnun Forsíða

Lyfjastofnun

Lyfjatextar miðlægt skráðra lyfja óaðgengilegir á lyf.is

25. júní 2026

Sem stendur er ekki hægt að nálgast ákveðna lyfjatexta í gegnum vef sérlyfjaskrár. Verið er að vinna í villunni

Hlekkir frá sérlyfjaskráá lyfjatexta miðlægt skráðra lyfja sem hýstir eru á síðu Evrópsku lyfjastofnunarinnar hafa legið niðri í vikunni.

Verið er að vinna í því að komast að rót vandans og lagfæra eins fljótt og hægt er.

Á meðan á ástandinu varir er hægt að benda á að fletta viðkomandi lyfjum upp á heimasíðu EMA.

Leit að íslenskum lyfjatexta hjá EMA

Fylgið hlekknum sem gefinn var upp fyrir ofan. Þegar þangað er komið þarf að velja þann flokk lyfja sem lyfið tilheyrir og slá inn lyfjaheitið sem leitað er að.

Þegar yfirlitssíðan fyrir viðkomandi lyf er opnuð þarf að skruna niður hana og finna flokkinn "Product information". Lyfjatextinn er vistaður undir "*lyfjaheiti: EPAR - Product Information".

Til að nálgast íslenska lyfjatextann þarf að opna flipann "Other languages", finna "Íslenska (IS)", smella á "View" og þá ætti lyfjatextinn sem leitað var að að birtast.

Lyfjastofnun

Heim­il­is­fang

Lyfjastofnun

Vínlandsleið 14

113 Reykjavík

Opnun­ar­tími

Móttaka

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. Lokað

Þjónustuver

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. 9:00 - 12:00