Fara beint í efnið
Lyfjastofnun Forsíða
Lyfjastofnun Forsíða

Lyfjastofnun

Þessi frétt er meira en árs gömul

Lyfjastofnun hefur tekið ákvörðun um tungumálakröfu fyrir ígræðiskort og fylgigögn

19. mars 2024

Gert er ráð fyrir að ígræðiskort og fylgigögn ígræðanlegra lækningatækja séu að jafnaði á íslensku

Ígræðier tilbúinn hlutur sem komið er fyrir í líkamanum til að sinna ákveðnu hlutverki. Heilbrigðisstofnanir bera ábyrgð á að afhenda sjúklingi ígræðiskort þar sem fram koma upplýsingar um ígræðið og varúðarráðstafanir vegna þess.

Lyfjastofnun ber samkvæmt 19. gr. laga um lækningatækiað setja reglur um tungumálakröfur sem gerðar eru til þeirra upplýsinga sem fylgja ígræðanlegum tækjum. Þessar reglur hafa nú verið settar og samkvæmt þeim eiga ígræðiskort sem heilbrigðisstofnanir afhenda sjúklingum að jafnaði að vera á íslensku. Verði því ekki við komið er heimilt að kortin séu á ensku eða öðru Norðurlandamáli, nema finnsku. Sömu tungumálakröfur gilda um fylgigögn ígræðis sem framleiðanda þess ber að birta á vefsetri sínu skv. 18. gr. reglugerðar ESB um lækningatæki.

Nánar um lækningatæki á vef Lyfjastofnunar.

Lyfjastofnun

Heim­il­is­fang

Lyfjastofnun

Vínlandsleið 14

113 Reykjavík

Opnun­ar­tími

Móttaka

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. Lokað

Þjónustuver

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. 9:00 - 12:00