Þessi frétt er meira en árs gömul
Lyfjastofnanir í Evrópu fá gæðastimpil frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO)
27. maí 2024
Lyfjastofnun er meðal þeirra sem fengið hefur viðurkenningu WHO.

WHO hefur gefið keðju lyfjastofnana í Evrópu (EMRN), sem Lyfjastofnun er hluti af, gæðastimpil með því að útnefna hana sem svæðisbundið netverk og skráð yfirvöld hjá WHO, WLA sem stendur fyrir WHO Listed Authority . Þetta þýðir að keðja lyfjastofnana í Evrópu uppfylla ströngustu kröfur um gæði, öryggi og verkun lyfja og bóluefna og gerir þessi viðurkenning WLA aðildarríkjum kleift að viðurkenna ákvarðanir sín á milli.
WLA í stuttu máli
WLA er listi Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar og hann hefur nú verið uppfærður með eftirfarandi aðilum sem falla undir EMRN:
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins (EC)
Lyfjastofnun Evrópu (EMA)
EDQM (European Diractorate for the Quality of Medicines)
og lyfjastofnanir eftirfarandi aðildarríkja: Austurríki, Belgía, Búlgaría, Danmörk, Eistland, Finnland, Frakkland, Grikkland, Holland, Írland, Ísland, Ítalía, Króatía, Kýpur, Lettland, Liechtenstein, Litháen, Lúxemborg, Malta, Noreg, Pólland, Portúgal, Rúmenía, Slóvakía, Slóvenía, Spánn, Svíþjóð, Tékkland, Ungverjaland og Þýskaland.
Til þess að hljóta gæðastimpilinn WLA er gerð krafa um að yfirvald eða svæðisbundið netverk geti sýnt fram á að það uppfylli allar kröfur WHO, sem eru m.a. að:
Til staðar séu skýr og vel afmörkuð lög um lyf
Þar starfi nóg af fólki sem hafi tilskilda menntun, reynslu og þekkingu á lyfjamálum
Ákvarðanir séu teknar á opinn og gagnsæjan hátt
Ákvörðun þessi er byggð á tilmælum WHO Technical Advisory Group (TAG-WLA) sem staðfestir samræmi í framkvæmd á eftirlitsstarfsemi fyrrnefndra stofnana samkvæmt alþjóðlegum kröfum um gæði, öryggi og verkun lyfja og bóluefna. WLA matið var byggt á gagnkvæmu samkomulagi þar sem EMRN var metin sem ein heild.
