Fara beint í efnið
Lyfjastofnun Forsíða
Lyfjastofnun Forsíða

Lyfjastofnun

Þessi frétt er meira en árs gömul

Lyf felld úr lyfjaverðskrá októbermánaðar 2023 vegna birgðaskorts

15. september 2023

Hægt er að óska eftir að pakkningarnar verði ekki felldar úr verðskránni séu birgðir væntanlegar fyrir næstu mánaðamót

Listi yfir þær pakkningar sem felldar verða úr lyfjaverðskrá októbermánaðar 2023 hefur verið birtur. Ef birgðir eru væntanlegar fyrir næstu mánaðamót er hægt að óska eftir að pakkningarnar verði ekki felldar úr verðskránni.

Þann 15. hvers mánaðar eða næsta virka dag á undan, safnar Lyfjastofnun gögnum úr lista á vef Sjúkratrygginga Íslands, yfir þær pakkningar með skráningu um birgðaskort sem staðið hefur lengur en 90 daga. Þær pakkningar verða felldar úr lyfjaverðskrá næstu mánaðarmót á eftir. Þannig verða pakkningar ínýbirtum listafelldar úr lyfjaverðskrá októbermánaðar.

Umboðsmenn og tengiliðir eru beðnir um að skoða lyfjapakkningar í sinni umsýslu, en hægt er að óska eftir að pakkningarnar verði ekki brottfelldar ef birgðir eru væntanlegar fyrir næstu mánaðamót. Slíka beiðni skal senda á netfangið verd@lyfjastofnun.is.

Lyfjastofnun

Heim­il­is­fang

Lyfjastofnun

Vínlandsleið 14

113 Reykjavík

Opnun­ar­tími

Móttaka

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. Lokað

Þjónustuver

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. 9:00 - 12:00