Leiðbeiningar um öryggisupplýsingar hafa verið uppfærðar
1. október 2025
Uppfærslan snýr m.a. að rafrænni dreifingu upplýsinganna

Leiðbeiningar um öryggisupplýsingar hafa verið uppfærðar.
Fyrri breytingin snýr að skilgreiningu á rafrænni dreifingu og því hvað felst í dreifingu öryggisupplýsinga með rafrænum hætti. Þessa uppfærslu leiðbeininganna er að finna í kaflanum Dreifing öryggisupplýsinga .
Síðari breytingin er sú, að ef öryggisupplýsingar tengjast lyfjaformum sem ekki verða markaðssett hérlendis, mun Lyfjastofnun ekki meta þær. Þessa breytingu má finna í kafla 1.6, Yfirferð Lyfjastofnunar og dreifing öryggisupplýsinga .
Umfjöllun um öryggisupplýsingar má kynna sér á vef Lyfjastofnunar.
