Þessi frétt er meira en árs gömul
Laust starf hjá Lyfjastofnun
18. mars 2025
Auglýst er eftir hugbúnaðarsérfræðingi

Lyfjastofnun auglýsir eftir sérfræðingi í starf í upplýsingatæknideild sem ber ábyrgð á umsjón og þróun hugbúnaðar sem tengist kjarnastarfsemi stofnunarinnar. Ein af áherslum Lyfjastofnunar er að vera stafræn stofnun sem nýtir sér gervigreind í daglegum störfum. Hugbúnaðarsérfræðingur er mikilvægur hlekkur í þeirri vegferð og fylgist með þróun og nýjungum sem heyra undir starfið og stuðla að umbótum.
Leitað er að manneskju sem er tæknilega fær, lausnamiðuð og hefur áhuga á að tileinka sér nýja þekkingu og færni. Viðkomandi þarf að hafa reynslu af Microsoft skýjalausnum og getu til að forrita á nútíma forritunarmáli. Það er kostur ef viðkomandi hefur forritað á móti island.is.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Greining, þróun og vörustjórnun á kerfum og ferlum Lyfjastofnunar
Verkefnastjórnun
Leiða undirbúning, greiningarvinnu og innleiðingu nýrra stafrænna lausna
Samskipti við hagsmunaaðila innanhúss og utan
Menntunar- og hæfniskröfur:
Háskólapróf á sviði tölvunarfræði, verkfræði eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi
Þekking og reynsla af forritun og hugbúnaðarþróun
Sjálfstæði og öguð vinnubrögð
Lipurð í mannlegum samskiptum, teymisvitund, jákvæðni og sveigjanleiki
Vilji og hæfni til að tileinka sér nýja þekkingu og færni
Góð tölvukunnátta og reynsla af Microsoft skýjalausnum
Þekking á hugbúnaði s.s. Jira, Confluence, Microsoft CRM og SQL er kostur
Umsóknarfrestur er til og með 20. mars 2025 . Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Lyfjastofnun hefur hlotið jafnlaunavottun og eru laun samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðuneytis og hlutaðeigandi stéttarfélags. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Nánari upplýsingar veita Lea Kristín Guðmundsdóttir (leakristin@intellecta.is) og Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) í síma 511 1225.
