Þessi frétt er meira en árs gömul
Laust starf hjá Lyfjastofnun
21. nóvember 2024
Auglýst er eftir fulltrúa í þjónustuver

Lyfjastofnun óskar eftir að ráða fulltrúa í þjónustuver. Viðkomandi mun sinna móttöku viðskiptavina og bera ábyrgð á þjónustu og dreifingu erinda sem berast í pósthólf Lyfjastofnunar ásamt því að þjónusta bæði starfsfólk og hagsmunaaðila. Leitað er að jákvæðum, sveigjanlegum, drífandi og þjónustulunduðum einstaklingi sem býr yfir framúrskarandi samskiptahæfni. Um er að ræða 100% starf og er kostur ef viðkomandi getur hafið störf sem fyrst. Gert er ráð fyrir að viðkomandi sé með viðveru á opnunartíma Lyfjastofnunar.
Helstu viðfangsefni og ábyrgð:
Umsjón erinda sem berast í pósthólf Lyfjastofnunar
Vöktun netspjalls og símtalsbeiðna
Vörumóttaka og móttaka viðskiptavina
Samskipti við þjónustuaðila og viðskiptavini
Innkaup á rekstrarvörum og aðföngum
Þátttaka í innkaupum og aðstoð vegna stærri viðburða á vegum Lyfjastofnunar
Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur:
Menntun sem nýtist í starfi
Góð skipulagshæfni ásamt ríkri þjónustulund og jákvæðni
Mjög góð teymisvitund og lipurð í mannlegum samskiptum
Sjálfstæði í vinnubrögðum og frumkvæði
Góð almenn tölvuþekking
Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli
Umsóknarfrestur er til og með 28. nóvember 2024 . Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Lyfjastofnun hefur hlotið jafnlaunavottun og eru laun samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðuneytis og hlutaðeigandi stéttarfélags. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Nánari upplýsingar veita Lea Kristín Guðmundsdóttir (leakristin@intellecta.is) og Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) í síma 511 1225.
