Þessi frétt er meira en árs gömul
Laust starf hjá Lyfjastofnun
1. nóvember 2024
Auglýst er eftir sérfræðingi til starfa við málaflokkinn lækningatæki

Lyfjastofnun auglýsir laust starf sérfræðings í málefnum lækningatækja í deild eftirlits og öryggis. Starfið felur í sér eftirlit með lækningatækjum á Íslandi í víðu samhengi. Leitað er að jákvæðum, drífandi, nákvæmum og skilvirkum einstaklingi til að sinna fjölbreyttum verkefnum. Um er að ræða 100% starf og er kostur ef viðkomandi getur hafið störf sem fyrst.
Helstu viðfangsefni og ábyrgð:
Eftirlit með framleiðslu, innflutningi, dreifingu og sölu lækningatækja
Eftirlit með viðhaldi og notkun lækningatækja
Upplýsingagjöf og samstarf við hagsmunaaðila
Samskipti við erlenda aðila er varða lækningatæki
Menntunar- og hæfniskröfur:
Menntun sem nýtist í starfi, t.d. hjúkrunarfræði, heilbrigðisverkfræði, náttúruvísindi eða
sambærilegt nám
Þekking eða reynsla á sviði lækningatækja er kostur
Þekking eða reynsla af eftirliti og gæðamálum er kostur
Mjög góð teymisvitund og lipurð í mannlegum samskiptum
Nákvæmni, skilvirkni og sjálfstæði í vinnubrögðum
Góð skipulagshæfni, jákvæðni og sveigjanleiki í starfi
Góð tölvufærni
Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli
Umsóknarfrestur er til og með 15. nóvember 2024 . Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Lyfjastofnun hefur hlotið jafnlaunavottun og eru laun samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðuneytis og hlutaðeigandi stéttarfélags. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Nánari upplýsingar veita Lea Kristín Guðmundsdóttir (leakristin@intellecta.is) og Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) í síma 511 1225.
