Þessi frétt er meira en árs gömul
Laust starf hjá Lyfjastofnun
20. ágúst 2024
Auglýst er eftir verkefnafulltrúa í markaðsleyfadeild

Verkefnafulltrúi í markaðsleyfadeild
Lyfjastofnun auglýsir laust starf verkefnafulltrúa í markaðsleyfadeild, sem heyrir undir svið mats og skráningar lyfja. Leitað er að jákvæðum, drífandi, nákvæmum og skilvirkum einstaklingi til að sinna fjölbreyttum verkefnum sem snúa að umsóknum um skráningu lyfja. Um er að ræða 100% starf og er kostur ef viðkomandi getur hafið störf sem fyrst.
Helstu viðfangsefni og ábyrgð:
Móttaka, meðhöndlun og eftirfylgni skráningarumsókna
Móttaka og umsýsla ýmissa skráningarverkefna
Vöktun pósthólfa
Menntunar- og hæfniskröfur:
Menntun sem nýtist í starfi
Þekking eða reynsla á sviði lyfjaskráninga eða viðfangsefnum starfsins er kostur
Mjög góð teymisvitund, samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
Nákvæmni, skilvirkni og sjálfstæði í vinnubrögðum
Góð skipulagshæfni, jákvæðni og sveigjanleiki í starfi
Góð tölvufærni
Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli
Umsóknarfrestur er til og með 27. ágúst 2024 . Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Lyfjastofnun hefur hlotið jafnlaunavottun og eru laun samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðuneytis og hlutaðeigandi stéttarfélags. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Nánari upplýsingar veitir Helga Birna Jónsdóttir (helga@intellecta.is) og Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) í síma 511 1225.
