Fara beint í efnið
Lyfjastofnun Forsíða
Lyfjastofnun Forsíða

Lyfjastofnun

Þessi frétt er meira en árs gömul

Lágmarksþjónusta veitt dagana 22. júlí – 5. ágúst vegna sumarleyfa

5. júní 2024

Opið verður á hefðbundnum tíma og áríðandi verkefnum sinnt þrátt fyrir lágmarksþjónustu að öðru leyti

Athygli er vakin á því að lágmarksþjónusta verður veitt dagana 22. júlí – 5. ágúst 2024 vegna sumarleyfa starfsfólks.

Opið verður á hefðbundnum tíma og öllum erindum verður svarað eins fljótt og auðið er, en tafir gætu orðið á tímabilinu sem um ræðir. Áríðandi verkefnum verður sinnt þessa daga þrátt fyrir lágmarksþjónustu að öðru leyti.

Eftirfarandi takmarkanir verða á þjónustu Lyfjastofnunar í sumar:

Beiðnir til Lyfjastofnunar sem umsjónarland (RMS) í DC-ferlum

RMS beiðnir sem berast Lyfjastofnun á tímabilinu 19. júlí – 5. ágúst 2024, verða unnar eins og þær hefðu borist þann 6. ágúst 2024. Beiðnum er alla jafna svarað innan eins mánaðar, þó geta svör tafist yfir sumartímann.

Undanþágur frá íslenskum áletrunum

Umsóknir um undanþágur frá íslenskum áletrunum sem berast Lyfjastofnun á tímabilinu 19. júlí – 5. ágúst 2024, vinnast eins og þær hefðu borist 6. ágúst 2024. Áríðandi umsóknum er sinnt eins fljótt og auðið er.

Öryggis- og fræðsluefni

Fræðsluefni sem berst Lyfjastofnun til yfirferðar á tímabilinu 19. júlí – 5. ágúst 2024, verður unnið eins og það hefði borist 6. ágúst 2024.

Núll daga ferlar

Beiðnir um núll daga ferla sem berast Lyfjastofnun á tímabilinu 19. júlí – 5.ágúst 2024, vinnast eins og þær hefðu borist þann 6. ágúst 2024.

Lækningatæki

Ekki verður tekið við umsóknum um leyfi til klínískra rannsókna og virknirannsókna á lækningatækjum og breytinga á rannsóknaráætlun, frá mánudeginum 15. júlí til föstudagsins 9. ágúst. Berist umsóknir á þessu tímabili verður móttaka þeirra ekki staðfest fyrr en eftir 12. ágúst.

CPP vottorð

Ekki verður tekið við umsóknum um CPP vottorð frá mánudeginum 15. júlí til og með föstudagsins 9. ágúst. Síðasti dagur sem tekið verður á móti umsóknum um CPP vottorð fyrir sumarleyfi er 12. júlí.

Inn- og útflutningsleyfi ávana- og fíkniefna og eftirlitsskyldra efna

Umsóknir um inn- og útflutningsleyfi ávana- og fíkniefna og eftirlitsskyldra efna á tímabilinu 20. júlí – 5. ágúst, vinnast eins og þær hefðu borist 6. ágúst 2024. Áríðandi umsóknum er sinnt eins fljótt og auðið er.

Leyfi lyfjafræðinema til að gegna afmörkuðum störfum lyfjafræðings

Umsóknir lyfjafræðinema um leyfi til að gegna afmörkuðum störfum lyfjafræðings sem berast 20. júlí eða síðar, vinnast eins og þær hefðu borist 6. ágúst 2024. Áríðandi umsóknum er sinnt eins fljótt og auðið er.

Umsækjendur eru hvattir til að miða áætlanir sínar við þessar dagsetningar.

Lyfjastofnun

Heim­il­is­fang

Lyfjastofnun

Vínlandsleið 14

113 Reykjavík

Opnun­ar­tími

Móttaka

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. Lokað

Þjónustuver

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. 9:00 - 12:00