Fara beint í efnið
Lyfjastofnun Forsíða
Lyfjastofnun Forsíða

Lyfjastofnun

Þessi frétt er meira en árs gömul

Lágmarksþjónusta veitt dagana 21. júlí – 4. ágúst 2025 vegna sumarleyfa

13. júní 2025

Opið verður á hefðbundnum tíma og áríðandi verkefnum sinnt þrátt fyrir lágmarksþjónustu að öðru leyti

Athygli er vakin á því að lágmarksþjónusta verður veitt dagana 21. júlí - 4. ágúst vegna sumarleyfa starfsfólks.

Opið verður á hefðbundnum tíma og öllum erindum verður svarað eins fljótt og auðið er, en tafir gætu orðið á tímabilinu sem um ræðir. Áríðandi verkefnum verður sinnt þessa daga þrátt fyrir lágmarksþjónustu að öðru leyti.

Eftirfarandi takmarkanir verða á þjónustu Lyfjastofnunar í sumar:

Beiðnir til Lyfjastofnunar sem umsjónarland (RMS) í DC ferlum

RMS beiðnir sem berast Lyfjastofnun á tímabilinu 21. júlí – 4. ágúst 2025, verða unnar eins og þær hefðu borist þann 5. ágúst 2025. Vakin er athygli á að úthlutun plássa fyrir árið 2026 hefst á þriðja ársfjórðungi 2025. Nánari upplýsingar má finna í frétt okkar, þar um.

Undanþágur frá íslenskum áletrunum

Umsóknir um undanþágur frá íslenskum áletrunum sem berast Lyfjastofnun á tímabilinu 21. júlí – 4. ágúst 2025, vinnast eins og þær hefðu borist 5. ágúst. Áríðandi umsóknum er sinnt eins fljótt og auðið er. Nánar um áletranir umbúða og fylgiseðla.

Öryggisupplýsingar

Öryggisupplýsingar sem berast Lyfjastofnun til yfirferðar á tímabilinu 21. júlí – 4. ágúst 2025, verða unnar eins og efnið hefði borist 5. ágúst. Nánar um öryggisupplýsingar.

Núll daga ferlar

Beiðnir um núll daga ferla sem berast Lyfjastofnun á tímabilinu 21. júlí – 4. ágúst 2025, vinnast eins og þær hefðu borist þann 5. ágúst. Nánar um núll daga skráningarferla.

Lækningatæki

Ekki verður tekið við umsóknum um leyfi til klínískra rannsókna og virknirannsókna á lækningatækjum og breytinga á rannsóknaráætlun 15. júlí – 9. ágúst 2025. Berist umsóknir á þessu tímabili verður móttaka þeirra ekki staðfest fyrr en eftir 12. ágúst.

Umsóknir um undanþágur frá tungumálakröfum notkunarleiðbeininga lækningatækja sem berast Lyfjastofnun á tímabilinu 21. júlí – 4. ágúst 2025, vinnast eins og þær hefðu borist 5. ágúst. Áríðandi umsóknum er sinnt eins fljótt og auðið er.

Umsóknir um undanþágur frá CE merkingu lækningatækja sem berast Lyfjastofnun á tímabilinu 21. júlí – 4. ágúst 2025, vinnast eins og þær hefðu borist 5. ágúst. Áríðandi umsóknum er sinnt eins fljótt og auðið er.

CPP vottorð

Ekki verður tekið við umsóknum um CPP vottorð frá mánudeginum 14. júlí – 9. ágúst 2025. Síðasti dagur sem tekið verður á móti umsóknum um CPP vottorð fyrir sumarleyfi er 11. júlí.

Inn- og útflutningsleyfi ávana- og fíkniefna og eftirlitsskyldra efna

Umsóknir um inn- og útflutningsleyfi ávana- og fíkniefna og eftirlitsskyldra efna á tímabilinu 21. júlí – 4. ágúst, vinnast eins og þær hefðu borist 5. ágúst. Áríðandi umsóknum er sinnt eins fljótt og auðið er.

Leyfi lyfjafræðinema til að gegna afmörkuðum störfum lyfjafræðings

Umsóknir lyfjafræðinema um leyfi til að gegna afmörkuðum störfum lyfjafræðings sem berast 21. júlí – 4. ágúst 2025, vinnast eins og þær hefðu borist 5. ágúst. Áríðandi umsóknum er sinnt eins fljótt og auðið er.

Lyfjastofnun

Heim­il­is­fang

Lyfjastofnun

Vínlandsleið 14

113 Reykjavík

Opnun­ar­tími

Móttaka

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. Lokað

Þjónustuver

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. 9:00 - 12:00