Fara beint í efnið
Lyfjastofnun Forsíða
Lyfjastofnun Forsíða

Lyfjastofnun

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hald lagt á ólögleg lyf hér á landi í alþjóðlegri aðgerð

13. mars 2024

Aðgerðin kallaðist Operation SHIELD IV og stóð yfir á tímabilinu frá apríl til október 2023

Tollgæslan og Lyfjastofnun voru meðal þátttakenda í alþjóðlegri aðgerð Europol sem beindist að viðskiptum og innflutningi á ólöglegum lyfjum.Alls tóku 30 ríki þátt í aðgerðinni sem bar nafnið Operation SHIELD IV og stóð yfir frá apríl til október 2023.Á heimsvísu var hald lagt á lyf að andvirði 64 milljóna evra, Ákærur voru gefnar út á hendur 1.284 einstaklingum og 52 skipulagðir glæpahringir voru rannsakaðir.Hér á landi var lagt hald á tæplega 16 þúsund töflur, þar á meðal voru tæplega 11 þúsund töflur af fíknilyfjum.Tollgæslan og Lyfjastofnun nutu liðsinnis embættis ríkislögreglustjóra og tengslaskrifstofu Íslands hjá Europol við aðgerðina.

Ekki verða veittar frekari upplýsingar um málið eins og fram kemur á vef Skattsins, en nánar má lesa um aðgerðina á vef Europol.

Lyfjastofnun

Heim­il­is­fang

Lyfjastofnun

Vínlandsleið 14

113 Reykjavík

Opnun­ar­tími

Móttaka

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. Lokað

Þjónustuver

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. 9:00 - 12:00