Fara beint í efnið
Lyfjastofnun Forsíða
Lyfjastofnun Forsíða

Lyfjastofnun

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fundur lyfjaöryggisnefndar EMA í janúar 2025

30. janúar 2025

Lyfjaöryggisnefndin (PRAC) hóf að meta hugsanleg orsakatengsl milli notkunar semaglútíðs og sjaldgæfs augnsjúkdóms

PRAC er sérfræðinganefnd Lyfjastofnunar Evrópu (EMA) um eftirlit með ávinningi og áhættu lyfja. Nefndin kemur saman mánaðarlega, ellefu mánuði á ári.

Tvær nýlegar áhorfsrannsóknir urðu til þess að PRAC hefur nú tekið til við að meta hvort orsakatengsl gætu hugsanlega verið milli notkunar semaglútíðs og sjaldgæfs augnsjúkdóms. Sjúkdómurinn sem um ræðir nefnist blóðþurrðarsjóntaugarkvilli án slagæðabólgu - NAION (non-arteritic anterior ischemic optic neuropathy). og lýsir sér með minnkuðu blóðflæði til sjóntaugarinnar sem getur þar með skemmt hana og orsakað blindu. -Semaglútíð lyf eru notuð ýmist sem meðferð við sykursýki eða offitu; lyfin sem um ræðir eru Ozempic, Rybelsus og Wegovy.

Lyfjaöryggisnefndin mun nú meta hvort meðferð með semaglútíð-lyfjum auki áhættu á NAION, og aflar til þess allra gagna sem tiltæk eru, þar á meðal úr klínískum rannsóknum, eftirliti eftir markaðssetningu, fræðigreinum o.fl.

Lyfjastofnun

Heim­il­is­fang

Lyfjastofnun

Vínlandsleið 14

113 Reykjavík

Opnun­ar­tími

Móttaka

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. Lokað

Þjónustuver

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. 9:00 - 12:00