Fara beint í efnið
Lyfjastofnun Forsíða
Lyfjastofnun Forsíða

Lyfjastofnun

Þessi frétt er meira en árs gömul

ESMP – aðlögunartímabilið er hafið

14. nóvember 2024

ESMP er kerfi til að skima fyrir og fá yfirsýn yfir lyfjaskort á EES-svæðinu, og verður tekið í notkun í febrúar 2025. Lyfjastofnun Evrópu verður með netnámskeið fyrir markaðsleyfishafa um notkun kerfisins miðvikudaginn 20. nóvember

Eins og áður hefur verið greint frá vinnur Lyfjastofnun Evrópu (EMA) að því að koma á fót kerfi til að skima fyrir og fá yfirsýn yfir lyfjaskort á EES-svæðinu. Kerfinu, sem ber heitið European Shortages Monitoring Platform (ESMP), er ætlað að safna upplýsingum um framboð og eftirspurn lyfja fyrir menn, í því skyni að fyrirbyggja skort, greina aðstæður og stýra málum, komi til skorts.Fyrsta útgáfa ESMP verður tilbúin í febrúar 2025, en aðlögunartímabil er nú hafið og stendur til janúarloka 2025.

EMA heldur netnámskeið fyrir markaðsleyfishafa 20. nóvember nk.

Vakin er athygli á netnámskeiði sem EMA heldur fyrir markaðsleyfishafa til kynningar á ESMP kerfinu. Námskeiðið er sérstaklega ætlað markaðsleyfishöfum miðlægt skráðra lyfja um hvernig tilkynna eigi lyfjaskort í gegnum ESMP grunninn.Námskeiðið fer fram miðvikudaginn 20. nóvember nk. kl. 9 - 11 að íslenskum tíma. Nauðsynlegt er að skrá sig í gegnum tengil á síðu námskeiðsins.

Þá er einnig vakin athygli á skriflegum leiðbeiningum sem ætlaðar eru markaðsleyfishöfum, um innleiðingu kerfisins.

EMA hvetur markaðsleyfishafa til að byrja sem fyrst að senda upplýsingar inn í kerfið og nýta vel aðlögunartímabilið sem stendur til janúarloka 2025.

Lyfjastofnun

Heim­il­is­fang

Lyfjastofnun

Vínlandsleið 14

113 Reykjavík

Opnun­ar­tími

Móttaka

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. Lokað

Þjónustuver

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. 9:00 - 12:00