Þessi frétt er meira en árs gömul
Endurskoðun hámarksverðs lyfja frá heildsölu
14. júlí 2025
Hér er um anna n hlut a að ræða sem snýr að almenn um lyf jum . Tímalínur endurskoðunar breyttar

Annar hluti endurskoðunar hámarksðverðs lyfja mun ná til kostnaðarsamra almennra lyfja. Eftirfarandi almenn lyf sem ívilnun fæst fyrir samkvæmt verðlagsreglum, þ.e. 20% hærra verð umfram viðmið, verða ekki verðendurskoðuð:
- sýkingarlyf í ATC-flokkum innan J01
- augnlyf innan ATC-flokksins S
- lyf í lyfjaformum sem einkum eru ætluð fyrir börn, t.d. mixtúrur og endaþarmsstílar
Tímalínur verðendurskoðunar eru breyttar frá því áður var greint frá. Þær eru nú eftirfarandi:
Fyrirhugaðar ákvarðanir verða sendar til hagaðila fyrir miðjan ágúst og andmælaréttur verður veittur til 10. október.
Fyrirhugað er að birta ný verð í lyfjaverðskrá 1. desember 2025.
